„Ég veit ekki hversu oft við vöruðum við þessu. Það var bara enginn hljómgrunnur fyrir því. Það var bara enginn að hlusta,“ segir Helga Kristín Gunnarsdóttir, talsmaður félagsins Vinir Vatnsenda, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Þar er fjallað um nýja veginn yfir Vatnsendahvarf og brúna yfir Breiðholtsbraut sem opnaði fyrr í þessum mánuði. Borið hefur á harðri gagnrýni vegna umferðartafa á svæðinu síðan vegurinn opnaði og sagði DV til dæmis frá gagnrýni Guðmundar Þórðar Ragnarssonar vélfræðings sem sagði nýju brúna vera algjört klúður sem einhver verði að bera ábyrgð á.
Eins og bent er á í umfjöllun Morgunblaðsins í dag stóð upphaflega til að reisa fullbúin mislæg gatnamót þar sem Vatnsendahvarf og Breiðholtsbraut mætast en horfið var frá því á lokametrunum og þess í stað ákveðið að hafa ljósastýrð gatnamót.
Helga segir við Morgunblaðið að Vinir vatnsenda hefðu ítrekað bent á að ljósastýrð gatnamót væru óhagkvæmari lausn í alla staði.
„Þetta er ótrúlegt bruðl og illa skipulagt. Ef það á að gera þetta þá á að minnsta kosti að gera þetta rétt og fylgja ráðleggingum sérfræðinga,“ segir hún og vísar til dæmis í ráðleggingar Vegagerðarinnar og annarra sérfræðinga.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.