Fréttir

Fiskikónginum blöskraði þegar hann hlustaði á útvarpið – Svarar fyrir sig og birtir myndir

Mynd
Kristján Berg Ásgeirsson, Fiskikóngurinn.

Kristján Berg Ásgeirsson, oft kenndur við Fiskikónginn, segir að fiskur hafi aldrei verið eins ódýr miðað við annað kjöt á markaðnum.

Kristján skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í gær, en tilefnið er umræða sem hann heyrði í útvarpinu um fisk og fiskverð.

„Ég hlustaði á Bylgjuna í síðustu viku og mig blöskraði hvernig útvarpsmennirnir töluðu niður fisk og fiskverð. Fiskur væri orðinn svo dýr að það væri orðin lúxusvara,” segir Kristján sem hefur rekið fiskverslun í 36 ár.

Hann segir að í öll þessi ár hafi verið talað um hversu dýr fiskur væri orðinn. Hann ákvað því að fara í aðra sérvöruverslun í vikunni þar sem hann grennslaðist fyrir um kjötverð.

„Myndirnar tala sínu máli. Er fiskverð svo hrikalega hátt að fólk borðar kjöt í staðinn,” spyr Kristján í færslu sínu og bætir við að samkeppni um verðlagningu á matvælum hafi alltaf verið til og verði alltaf til.

„Ég get fullvissa ykkur um að fiskur er það ódýrasta og hollasta sem hægt er að kaupa. Það er engin ómenguð villibráð á eins ódýru verði líkt og fiskur,“ segir hann og nefnir að fiskur sé ekki sykursprautaður og ekki með neinum rotvarnar- eða þyngingarefnum.

„Ég segi að fiskur hefur aldrei verið eins ódýr miðað við annað kjöt á markaðnum. Við skulum heldur ekki gleyma að kjöt er niðurgreitt um ca 8 milljarða á hverju ári (lambakjöt),” sagði hann og biðlaði til fylgjenda sinna á Facebook.

„Ef þú ert með myndir af ódýrari matvælum en fiski, þá máttu senda mér línu. Hvaða matvæli er hagstæðast að kaupa inn ? Hreina afurð, beinlaus og skinnlausa.“

Margir tóku undir með Kristjáni í athugasemdum við færslu hans en þó ekki allir. Einn benti til dæmis á að ef það þyrfti að hýsa fiskinn og fæða hann þar til hann væri klár í sölu væri hann líklega dýrari en kjöt.