Andy Burnham er formlega orðinn forsætisráðherra Bretlands. Hann hitti Karl III Bretakonung nú um hádegið og fékk umboð til að mynda ríkisstjórn.
„Hans hátign fékk til fundar Andrew Burnham og bað hann um að mynda nýja ríkisstjórn. Andrew Burnham féllst á það og kyssti hendur hans þegar hann skipaði hann forsætisráðherra,“ segir í tilkynningu Buckinghamhallar. Konungurinn hitti einnig Marie-France van Heel, eiginkonu Burnham. BBC hefur bent á að með skipun Burnham hefur verið slegið nýtt met í núlifandi fyrrverandi forsætisráðherrum, alls níu. Hér á Íslandi eru þeir sjö.
Aukin valddreifing og ný tíu ára áætlun
Burnham hélt í kjölfarið ræðu fyrir utan Downingsstræti 10, vakti athygli að einungis var notast við hljóðnema á standi en ekki ræðupúlt. Sagðist hann vera mjög meðvitaður um að hann sé sjöundi forsætisráðherrann frá 2016. „Þetta krefst þetta að stjórnmálamenn af minni kynslóð geri betur og takist á við áskoranir. Bretland þarf að sýna heiminum að við getum náð stöðugleika á ný, það er okkar áskorun,“ sagði hann. „Ég vil vera hreinskilinn við ykkur. Við höfum ekki staðið okkur nógu vel og við þurfum að gera betur. Við munum gera það. Þessi stund mun marka þáttaskil hjá Bretlandi. Munum við gera stærstu breytingar á síðustu fjörutíu árum, nýtt stjórnmálamódel og nýtt efnahagsmódel.“
Hann segir að Bretland hafi tekið ranga beygju á níunda áratugnum. „Pólitískt vald varð miðstýrt og efnahagsvaldið var einkavætt. Iðnaður hvarf úr stórum hluta landsins og margir staðir hafa enn ekki náð sér og hafa ekki tækifæri til að snúa hlutunum við. Þess vegna ætlum við að breyta stjórnmálakerfinu, láta það snúast um að leysa vandamál en ekki að skora stig. Við munum taka valdið héðan burt og færa það í öll póstnúmer í landinu til að þau geti gert meira.“
Með því að færa valdið til sveitarfélaga verði hægt að koma efnahagslífinu aftur í gang og auka iðnað. „Seinna á þessu ári mun ég koma með nýja áætlun fyrir Bretland, tíu ára áætlun. Við byrjum á staðnum sem við erum núna og endum þar sem ég tel við öll viljum að Bretland verði.“ Frá og með morgundeginum muni hann svo tilkynna um ýmsar aðgerðir til að lækka kostnað almennra borgara.
Búist við símtali frá Trump
Keir Starmer var á undan Burnham að hitta konunginn þar sem hann baðst lausnar. Í kveðjuræðu sinni fyrir Downingsstræti 10 í morgun sagði Starmer að hann styddi Burnham alla leið. „Ég kveð með brosi og stoltur af öllu sem við höfum áorkað,“ sagði hann. Hans stærsti sigur hafi verið að koma Verkamannaflokknum aftur til valda.
Búist er við því að Burnham fái símtöl frá þjóðarleiðtogum síðar í dag, þar á meðal Donald Trump Bandaríkjaforseta. Trump sagði í gær að íbúar Aberdeen „dönsuðu á götum úti“ en Trump telur að Burnham muni heimila tilraunaboranir á olíu og gasi í Norðursjó.
Nýi forsætisráðherrann hefur áður lýst því yfir hann hyggist leiða tíu ára verkefni til að auka lífsgæði í Bretlandi og ætlar að gera útibú fyrir embætti forsætisráðherra í Manchester.
Sjá frétt: Burnham boðar nýja tíma:„Nr. 10 Norður verður miðpunktur“
Hann hefur einnig boðað niðurskurð í velferðarmálum en á sama tíma mestu uppbyggingu á félagslegu húsnæði í landinu frá stríðslokum.
Burnham hefur lýst því yfir að hann vilji sjá meiri ríkisafskipti af innviðum og er því búist við því að hann muni ráðast til atlögu við Thames Water, vatnsveitu fyrir 16 milljón manns sem glímir við 20 milljarða punda skuldahala.