Fréttir

Aðstoðarmaður tannlæknis misnotaði lyfjuð börn – Yngsta barnið fjögurra ára

Mynd
Garcia fékk þungan dóm þrátt fyrir að hafa játað brot sín. Mynd/Lögreglan í Maricopa sýslu

Aðstoðarmaður tannlæknis í Arizona fylki hefur játað að hafa misnotað og tekið kynferðislegar myndir af börnum sem voru lyfjuð. Hann mun þurfa að dvelja næstu 40 árin í fangelsi.

Aðstoðarmaðurinn, hinn 29 ára Deion Garcia, frá bænum Chandler í Arizona vann á tannlæknastofunni Kidiatric Dental & Orthodontics.

Málið kom upp þegar foreldrar sex ára stúlku kærðu Garcia til lögreglunnar. Sögðu foreldrarnir að Garcia hefði snert stúlkuna á óviðeigandi hátt og tekið af henni ljósmyndir. Gerðist þetta á meðan verið var að taka röntgen myndir af munni hennar.

Við rannsókn málsins kom í ljós að þetta var ekki einsdæmi. Á síma Garcia fundust ljósmyndir af börnum í tannlæknastólnum, allt niður í fjögurra ára gömul. Sum þeirra voru með skerta meðvitund vegna lyfja.

Garcia játaði misnotkun barns, tilraun til misnotkunar og að hafa tekið myndir af börnum í kynferðislegum tilgangi. En við glæpum af þessu tagi liggja mjög þung viðurlög í Arizona. Þrátt fyrir að hafa játað glæpi sína hlaut Garcia 40 ára fangelsisdóm.