Um klukkan 19 í kvöld barst lögreglu tilkynning um aðila sem hafði fallið í Ölfusá. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar brugðust við á hæsta forgangi. Skömmu eftir klukkan 22 í kvöld var svo greint frá því að manneskjunni hefði verið bjargað eftir stutta leit og var viðkomandi í framhaldinu fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Reykjavík.
Framangreint kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Fréttin hefur verið uppfærð