Íslendingurinn Baldur Sigurðsson, sem búsettur er í Drammen í Noregi, segir samfélagið í sárum vegna eldsins sem logar enn í skógi við bæinn og eyðilagði hundruð húsa í íbúðahverfi áður en tókst að ráða niðurlögum hans þar.
Baldur ræddi atburðina við RÚV.
„Hús í Noregi eru flest öll búin til úr timbri. Þetta hverfi er fyrst byggt 1970 og fram yfir 80 og húsin eru ansi þétt þarna í hlíðinni, og eins og vindáttin var í gær þá var hún ekki hagstæð með það að gera að þetta blés bara beint inn í hlíðina,“ segir Baldur í viðtalinu.
Baldur segist hafa óttast hið versta en sem betur fer hafi mál ekki þróast á þann veg:
„Sem betur fer fór það ekki þannig, það voru um sex þyrlur hérna í gær sem voru bara í færibandsvinnu við að hella vatni á þetta og þeir eru þrír í dag að slökkva það sem eftir er.“
Baldur segir mikla uppbyggingu framundan en margir íbúa sem misstu heimili sínu muni ekki snúa heim aftur. Samstaða meðal íbúa sé mikil vinna við að hjálpa þeim sem misstu allt sitt í eldinum sé hafin.
Sjá nánar hér.