Fréttir

Kári gagnrýnir þingmenn: „Hálfpartinn gefist upp á því að stemma stigu við ógninni“

Mynd
Kári Stefánsson.

Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að þingmenn sem lögðu fram á síðasta þingi frumvarp til laga um að leyfa netverslun með áfengi séu á villigötum. Hann segir að talsmaður frumvarpsins, Grímur Grímsson, hafi gert þau mistök að treysta á brjóstvitið í málefni sem hann hafi ekki þekkingu á. 

Þetta kemur fram í aðsendri grein Kára í Morgunblaðinu. Hann telur það vera mikla firru að aukið aðgengi að áfengi auki ekki áfengisneyslu: 

„Talsmaður frumvarpsins var Grímur Grímsson fyrrverandi lögreglumaður, sem lét hafa það eftir sér í Morgunblaðinu að aukið aðgengi að áfengi yki ekki neyslu þess. Þessi staðhæfing úr munni lögreglumannsins farsæla er gott dæmi um það hvað gerist þegar menn stíga út fyrir sérsvið sitt og halda að brjóstvitið dugi eitt og sér. Staðreyndin er nefnilega sú að það er margoft búið að sýna fram á það með góðum faraldsfræðirannsóknum að því meira sem aðgengið er, þeim mun meiri er drykkjan. Mark Pearson, sem er einn af framkvæmdastjórum OECD, sagði á læknadögum í janúar að ýmislegt benti til þess að síðan netsala með áfengi hófst hér á landi hefði áfengisneysla aukist hér en minnkað í flestum OECD-löndunum. Það er því ljóst að aukið aðgengi að áfengi eykur neyslu þess.“

Afleiðingar áfengisneyslu

Kári bendir á að áfengi komið við sögu í stórum hluta alvarlegra slysa og ofbeldisverka. Áfengisnotkun auki jafnframt líkur á mörgum tegundum krabbameina og auki líkur á hjartabilun. Engu að síður hafi átta þingmenn lagt fram lagafrumvarp sem hefði aukið áfengisneyslu ef það hefði verið samþykkt. Engu sé líkara en samfélagið hafi gefist upp á því að stemma stigu við þeirri ógn sem áfengi er: 

„Að mínu mati eru þessir þingmenn upp til hópa einstaklega gott fólk og sneisafullt af samhygð og hafa í það minnsta tveir þeirra orðið að berjast við fíknidjöfullinn í sjálfum sér eða sínum nánustu. Talsmaður frumvarpsins varð á sínum tíma frægur af verðleikum á Íslandi fyrir að leiða röggsamlega rannsókn á dapurlegu morði sem var framið í einhvers konar áfengismóðu. Þegar maður horfir á þetta allt í samhengi lítur út fyrir að ekki bara þessir þingmenn heldur samfélagið í heild sinni hafi hálfpartinn gefist upp á því að stemma stigu við ógninni.“

Kári tekur fram að hann sé ekki að tala fyrir áfengisbanni heldur aðgerðum sem vinni gegn aukningu á neyslu eða dragi úr henni. Skýrt sé í lögum og staðfest með dómi héraðsdóms að netsala með áfengi sé ólögleg í landinu. Netsala áfengis sem viðgengst í strássi við lög sé í boði ríkisstjórnarinnar og dómsmálaráðherra sem hefur lýst því yfir að hún ætli ekki að hlutast til um að lögregla grípi til aðgerða gegn starfseminni.