Byggð í Sørvágur, í Vogum, Færeyjum var hætta búin eftir að eldur kviknaði í íbúðarhúsi þar í hádeginu. Samkvæmt upplýsingum frá Íslendingum sem dveljast í innan við 200 metra fjarlægð frá eldinum tókst að bjarga öllum úr húsinu.
„Mér skilst að konan hafi komist út úr húsinu í næsta hús og lét hringa á slökkvilið,“ segir Íslendingur á svæðinu í samtali við DV. Um er að ræða einbýlishús fjölskyldu en ekki liggur fyrir um hvað marga einstaklinga er að ræða.
Greint er frá málinu í Kringvarpinu í Færeyjum og þar kemur fram að fólk er beðið um að halda sig í fjarlægð frá eldinum.
„Það tók slökkviliðið um 11 mínútur að koma á vettvang. Fyrst kom staðarslökkviliðið en síðan slökkviliðið ofan af flugvelli með tvo stóra slökkvibíla, og það bjargaði held ég öllu,ׅ“ segir Íslendingurinn og bendir á að mikil hætta hafi verið á því að eldurinn breiddist út.
Um er að ræða Vogaflugvöll sem er skammt frá Sørvágur og er eini alþjóðaflugvöllurinn í Færeyjum.
„Hér er mjög þétt byggð. Það hafði þegar kviknað í þakskegginu á húsinu við hliðina en slökkviliðinu tókst að slökkva þann eld,“ segir viðmælandi DV.
Íslendingurinn segir þetta vera sláandi upplifun í ljósi stórbrunans í Drammen í Noregi. Tekið skal þó fram að þessi eldsvoði hefur engin tengsl við skógareld. Ekki er vitað um eldsupptök á þessari stundu.
„Þetta er ekki langt frá okkur,“ segir hann og segist hafa fylgst með brunanum og slökkistarfi „í beinni útsendingu“ en þó í töluverðri fjarlægð. Hafi þetta verið óþægileg upplifun.