Fréttir

Ævintýralegur seinagangur: Ákæra gegn Ástríði var í vinnslu haustið 2024 – Fleiri sláandi dæmi

Mynd
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. Mynd: Maggi gnúsari.

Nokkuð hefur kveðið að fréttum undanfarið þar sem vikið er að gagnrýni á lögreglu fyrir óheyrilegan seinagang við rannsókn og kærumeðferð sakamála. DV fjallaði í vikunni um mál Ástríðar Kristínar Bjarnadóttur, sem sat 12 vikur í gæsluvarðhaldi sumarið 2023 vegna gruns um stórfelld fjársvik gagnvart fjölmörgum karlmönnum. en núna, þremur árum síðar hefur Ástríður hvorki verið ákærð né mál gegn henni felld niður. 

Sjá einnig: Eitt umtalaðasta fjársvikamál seinni ára sagt vera á lokametrunum

Fleiri sláandi dæmi um seinagang lögreglu hafa verið í fréttum að undanförnu sem vikið er að hér að neðan. Varðandi mál Ástríðar skal þess getið að tölvupóstsamskipti DV við ákærusvið lögreglunnar sýna að ákæra gegn henni var í smíðum haustið 2024.

DV sendi þá eftirfarandi fyrirspurn til ákærusviðs: 

„Mér hefur borist ábending um að ákæra gegn Ástríði Kristínu Bjarnadóttur sé í smíðum hjá ákærusviði. Hvenær má búast við að henni verði birt ákæra?“

Til svara var Hildur Sunna Pálmadóttir, þáverandi aðstoðarsaksóknari embættisins og núverandi aðstoðarlögreglustjóri, þann 16. september 2024 sagði hún í svari sínu: 

„Það er erfitt að segja.  Ákæran er enn í vinnslu hjá okkur og því ekki ljóst hvenær hún verður send héraðsdómi, en héraðsdómur gefur út fyrirkall og sendir lögreglu til birtingar ásamt ákæru.“

DV fylgdi fyrirspurninni eftir síðar um haustið og fékk þau svör að ákæran væri enn í vinnslu. 

Fyrir nokkrum dögum, tæplega tveimur árum síðar, spurðist DV aftur fyrir um stöðu málsins og Hildur Sunna varð fyrir svörum og skrifaði þetta: 

„Unnið er að því að klára  málið og von á að því ljúki í sumar.“

Ríkið skaðabótaskylt

Fyrir skömmu var ríkið dæmt skaðabótaskylt vegna slælegra vinnubragða lögreglu við rannsókn á líkamsárás fyrir utan Laugarnesskóla vorið 2020.

Sjá einnig: Dómari gagnrýnir lögreglu harðlega fyrir slæleg vinnubrögð við rannsókn á alvarlegri líkamsárás

Maður varð þá fyrir árás þriggja manna og hlaut af rifbeinsbrot, áverka á öxl og baki auk áfallastreituröskunar og var síðar metinn með 18 stiga varanlega örorku. 

Þrátt fyrir að árásarmennirnir væru þrír var aðeins einn þeirra ákærður. Kenndi maðurinn þar um rannsókn lögreglu og stefndi ríkinu. Hann taldi að annmarkar rannsóknarinnar hefðu orðið til þess að ekki tókst að upplýsa málið með fullnægjandi hætti og að hann hefði því misst raunhæfan möguleika á að fá fullar skaðabætur úr hendi allra árásarmannanna. Hann kvartaði ítrekað yfir seinagangi rannsóknarinnar til lögreglu, nefndar um eftirlit með störfum lögreglu, umboðsmanns Alþingis og loks ríkissaksóknara.

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á að rannsókn lögreglu hefði verið mjög ábótavant. Sérstaklega var bent á að rannsókn hefði legið niðri mánuðum saman án skýringa og að tafir á skýrslutökum hefðu verið með öllu óásættanlegar. Dómurinn taldi að lögregla hefði jafnframt brotið reglur um framkvæmd skýrslutaka með því að taka mikilvægar vitnaskýrslur einungis í síma. Þessi vinnubrögð voru talin fela í sér stórfellt gáleysi af hálfu þeirra sem báru ábyrgð á rannsókninni. 

Var ríkið dæmt til að greiða manninum eina milljón króna í miskabætur og tvær milljónir í málskostnað. 

Sýknaðir átta árum eftir meint brot

Þriðja dæmið um seinagang við lögreglurannsóknir sem hefur verið til umfjöllunar nýlega varðar sýknudóm yfir tveimur mönnum vegna meints fjárdráttar. 

Er dómurinn var kveðinn upp voru liðin tæplega átta ár frá því að debetkort mannanna hjá garðaþjónustufyrirtæki sem þeir ráku hafði verið notað við úttektir úr banka. Var annar maðurinn ákærður fyrir að taka út 940 þúsund krónur en hinn 740 þúsund krónur. 

Í frétt RÚV kemur fram að fimm ár liðu frá því að kæra var lögð fram í málinu og þar til mennirnir voru kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu. 

Dómari taldi óhóflegan drátt hafa orðið á rannsókninni og henni verið verulega ábótavant. Sýknaði hann báða mennirna og ríkið verður að greiða málsvarnarlaun þeirra upp á rúmar 2,3 milljónir króna.