Fréttir

Tekist á um milljarðabrú á bæjarráðsfundi - Guðmundur beið í óratíma í bílaröð - „Einhver beri ábyrgð á þessu djöfulsins bulli“

Mynd
Mynd: Vegagerðin.

Guðmundur Þórður Ragnarsson vélfræðingur segir nýja brú yfir Breiðholtsbraut milli Jaðarsels í Breiðholti og Vatnsendahvarfs í Kópavogi algjört klúður sem einhver verði að bera ábyrgð á. Einar Jóhannes Guðnason, varaingmaður og bæjarfulltrúi, lýsir að sama skapi yfir furðu sinni á hönnun brúarinnar.  

Brúin var opnuð fyrir bílaumferð fyrir viku, 10. júlí. Samhliða voru ný umferðarljós við gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar tekin í notkun.  Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að opnun brúarinnar sé stór áfangi í framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar. 

Guðmundur birti myndband á Facebook-síðu sinni á miðvikudag þar sem sjá má langa bílaröð á undan honum á brúnni. „Enn eitt Reykjavíkurklúðrið að koma fram í boði Samfylkingar og Viðreisnar. Kalla eftir því að það verði birt hvaða einstaklingar bera ábyrgð á þessu“, skrifar hann við myndband sitt.

„Jæja þá er ég að fara í fyrsta skipti á nýju sjö milljarða brúnna sem er búið að eyðileggja með ljósastýringu og ég er búinn að vera að bíða alveg ofan af brú og hingað niður eftir. Gengur mjög hægt. Þannig að sama bið er eins og áður fyrr. Þetta er alveg með ólíkindum að það skuli hafa fundist fólk til að gera þetta klúður. Maður hlýtur að kalla eftir að einhver verði látinn bera ábyrgð á þessu djöfulsins bulli.

 

Heildarkostnaður við veglagningu, tvöföldun Breiðholtsbrautar og brúna er áætlaður um 8.000 milljónir króna (skv. samgöngusáttmála).

Mynd
Mynd: Vegagerðin.

Á fundi bæjarráðs Kópavogs í gær, fimmtudaginn 16. júlí, lýsti Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður og bæjarfulltrúi, yfir furðu sinni á hönnun brúarinnar.  Hann segir að meirihlutinn í Kópavogi hafi ekki beitt sér opinberlega fyrir skynsamri útfærslu brúarinnar. Á fundinum var árshelmingsskýrsla Betri samgangna lögð fram og var Arnarnesvegurinn meðal annars í henni.

„Kópavogsbúar finna nú fyrir óskiljanlegri hönnun nýrrar brúar á Arnarnesvegi. Meirihlutinn hefur vísað ábyrgðinni til Vegagerðarinnar þótt Kópavogsbær hafi sérstaklega samið um að flýta framkvæmdinni og notað hana sem rök fyrir samþykki Borgarlínu með tilheyrandi þrengingu að fjölskyldubílnum. Kópavogsbær hefur ekki beitt sér opinberlega fyrir skynsamari útfærslu brúarinnar. Færsla umferðarljósanna frá Ögurhvarfi að nýjum gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar leysir ekki umferðarvandann heldur færir hann,“

segir í bókun Einars á fundinum. Sagði hann Miðflokkinn jafnframt krefjast skýringa á því „hvers vegna meirihlutinn stóð ekki fastar í lappirnar gagnvart meintu ofríki Reykjavíkurborgar og hvort hann hyggist beita sér fyrir varanlegum úrbótum á umferðarflæði svæðisins.“

Mynd
Mynd: Vegagerðin.

Meirihlutinn sagði í bókun sinni að Arnarnesvegurinn væri mikilvæg samgöngubót og hafnaði því alfarið að framkvæmdum hafi verið flýtt vegna Borgarlínu:

„Í samkomulagi Samgöngusáttmálans er gert ráð fyrir að ríkið fjármagni sinn hlut með flýti- og umferðargjöldum eða annarri fjármögnun. Bæjarstjóri Kópavogs hefur bent opinberlega á að eignasala sé ákjósanlegri kostur í þeim efnum fremur en flýti- og umferðargjöld.

Fullyrðing um að framkvæmdum við Arnarnesveg hafi verið flýtt til að koma Borgarlínu fyrir er ekki rétt, útfærslan lá fyrir á þarsíðasta kjörtímabili. Mikilvægt er að halda því til haga að Arnarnesvegurinn er mikilvæg samgöngubót fyrir efri byggðir og Kópavogsbúa alla. Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að endurskoða ljós við gatnamótin til að tryggja sem best flæði á þessum gatnamótum og hefur bæjarstjóri þegar sent ábendingar til Vegagerðarinnar um vanstillingu ljósanna.“