Samhjálp hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Samhjálp kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kvörtunin snýst um annmarka á málsmeðferð, rannsókn, meðalhófi og jafnræði. Málið hefur kostað samtökin, sem að stórum hluta eru rekin fyrir gjafafé mikla fjármuni vegna vinnubragða og tafa við afgreiðslu málsins af hálfu borgarinnar.
Úrskurðurinn vekur að mati Samhjálpar upp álitamál um nálgun nefndarinnar og ekki er með öllu ljóst hvaða matsþætti nefndin lagði til grundvallar. Svo virðist að fjárhagsleg og félagsleg staða gesta hafi jafnvel haft áhrif á matið án skýrra hlutlægra raka, sérstaklega í ljósi þess að nefndin taldi óvissu ríkja um raunveruleg grenndaráhrif. Þá gengur niðurstaðan lengra en fyrri framkvæmd nefndarinnar í málum þar sem reynt hefur á byggingarleyfi í tengslum við félagsleg úrræði fyrir viðkvæma hópa, án nokkurs rökstuðnings fyrir breyttri framkvæmd.