Fréttir

Opna nýja móttökustöð fyrir fyrirtæki

Mynd
Gísli Þór Arnarson, framkvæmdastjóri þjónustu hjá Terra.

Terra hefur opnað nýja móttökustöð fyrir fyrirtæki að Berghellu 1 í Hafnarfirði. Þangað geta fyrirtæki nú komið með úrgang sinn til förgunar á einfaldan, hagkvæman og þægilegan hátt að sögn Gísla Þórs Arnarsonar, framkvæmdarstjóra þjónustu hjá Terra.

„Fyrirtæki keyra einfaldlega inn á vigt við komu og aftur við brottför og greiða samkvæmt kílóum sem skilað er inn, en ekki rúmmáli. Þjónustan er opin bæði fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Terra og þeim sem vilja greiða á staðnum,“ segir Gísli Þór.

Mynd
Ný móttökustöð Terra fyrir fyrirtæki er að Berghellu 1 í Hafnarfirði.

Á stöðinni verður tekið á móti fjölbreyttum úrgangsflokkum og má þar nefna ýmiss konar plasti, pappír, pappa, timbri, dekkjum, málmum, gleri og blönduðum rekstrarúrgangi.

Hann segir að ef einhver vafi leiki á flokkuninni sé starfsmaður á svæðinu tilbúinn að leiðbeina og hjálpa til þannig að úrgangurinn fari á réttan stað. „Með nýju móttökustöðinni er Terra að stíga enn eitt skrefið í að bæta þjónustu við fyrirtæki,“ segir Gísli Þór.

Opnunartími á nýju móttökustöðinni er frá klukkan 8 til 16.30 alla virka daga.