Fréttir

Ófögnuður blasti við leigusölum við Hvolsvöll eftir svikapar – Túrblettir og klósettpappír út um allt og sprautað úr sturtuhausi

Mynd
Aðkoman var hræðileg. Myndir/aðsendar

Fólk sem leigir bústaði nálægt Hvolsvelli varar við suður kóreysku pari sem svindlaði sér inn í hús og skildi allt eftir í rúst. Litlu mátti muna að tjón yrði á bústaðnum eftir fólkið sem hafði afbókað sig en mætt samt.

„Sem betur fer komum við í tæka tíð. En við vorum þrjú að þrífa í klukkutíma eftir fólkið sem var þarna í 4 eða 5 tíma í mesta lagi. Við náðum að forða tjóni og heppilegt að baðherbergið er dúkað frá gólfi og upp alla veggi,“ segir kona sem leigir hús nálægt Hvolsvelli í Rangárþingi.

Hún lenti í suður kóreysku pari sem bókaði undir nafninu Taeeun Kim, afbókaði en mætti samt.

Konan segir að fólkið hafi verið komið með kóðann og því geta náð í lyklana í lyklaboxi.

„Maður þarf að vera vakandi fyrir þessu og afbóka ekki fyrr en maður getur breytt kóðanum,“ segir hún.

Ófögnuðurinn sem blasti við henni þegar hún mætti í húsið var mikill. Lýsti hún ástandinu í færslu á samfélagsmiðlum.

Mynd

„Ekki leigja Taeeun Kim frá Suður Kóreu var að yfirgefa hús hér á Suðurlandi við Hvolsvöll og eru þau líklega að reyna að finna sér gistingu i nótt.

Langar að vara við pari sem bókaði nótt hjá okkur en óskaði svo eftir að fá að afbóka og hringdi svo í mig og sagði að það væri allt í hárum svo þau vildu afbóka. Ég komst ekki strax á staðinn og varð bara að trúa fólkinu þó ég hafi sjálf þrifið húsið í dag og vissi betur. Ég fæ svo upplýsingar um að þau séu enn í húsinu kl 21 en eru farin þegar ég kem rétt fyrir 22 og þá er allt á floti búið að sprauta með sturtuhausnum út um allt, meira að segja inní skáp. Þekja glugga með klósettpappír, túrblettir í rúminu og allt í skít. Þau eru svo búin að blokka númerið mitt og nú annað númer sem ég reyndi að hringja úr,“ segir í færslunni þar sem aðrir ferðaþjónustuaðilar eru varaðir við.

Aðspurð segist konan ekki hafa gert lögreglu viðvart um málið. Lögreglan geti ekkert gert í svona málum. Hún hafi náð að forða tjóni, svo sem í skápnum sem hefði verið ónýtur ef hún hefði komið seinna að honum.