Bíræfinn kattamorðingi þurfti aðeins að dvelja einn dag í fangelsi nágrönnum sínum til mikillar hneykslunar. Hinn 25 ára Thomas Martel svalaði kvalalosta sínum með því að drekkja kettlingum og steikja þá í örbylgjuofni.
Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.
Martel, sem er frá bænum Wicker Park, rétt norðan við Chicago borg í Illinois fylki, játaði dýraníð sitt og hlaut fjögurra ára fangelsisdóm. Hann þurfti hins vegar aðeins að dvelja einn dag á bak við lás og slá en restina af dóminum afplánar hann með ökklabandi.
Nágrannar Martel eru miður sín og óttast um gæludýrin sín. Það er vegna sjúkrar hegðunar Martel gagnvart köttum og kettlingum. En á meðan afplánuninni stendur má Martel ekki eiga eða koma nálægt neinum gæludýrum.
Grunur um atferli Martel kom upp fyrst fyrir um þremur árum síðan. Það var eftir ábendingar frá fyrrverandi kærustu hans sem hafði skoðað myndir á símanum hans sumarið 2023. Eitt myndband af ketti var nefnt: „Rétt áður en ég myrti hana.“ Sagði hún lögreglu að Martel hefði drekkt mörgum kettlingum í baðkarinu sínu og fleiri álíka skelfilegar sögur.
Þótti lögregluyfirvöldum einnig undarlegt hversu marga ketti Martel hafði átt og hversu margir þeirra hefðu „týnst“.
Steikti kettling í örbylgjuofni
Árið 2025 hófst málareksturinn gegn Martel og þá kom meiri hryllingur í ljós. Meðal annars myndband sem sýndi afhöfða köttinn úr áðurnefndu myndbandi.
Hafði Martel viðurkennt fyrir kærustu sinni að hann hefði stundum sett kettlinga í örbylgjuofninn og steikt þá lifandi. Hann hafi stundað það að drepa kettlinga allt frá því hann var ungur drengur.
Eins og áður segir eru nágrannarnir ekki í rónni yfir því að Martel skuli fá að dvelja heima hjá sér. Óttast þeir að hann taki upp fyrri iðju. Hafa því þeir hengt upp plaggöt víða um hverfið með ljósmynd af Martel, heimilisfangi hans og upplýsingum um dóminn sem er merktur inn á plaggatið með QR-kóða.
Of auðvelt að eignast gæludýr
Jackie Groberski, framkvæmdastjóri dýraverndarsamtakanna SAY, segir að málið sé góð áminning um að fólk þurfi að hugsa vel um og verja gæludýrin sín.
„Við vitum ekki enn þá hvernig Thomas Martel fékk alla þá kettlinga sem hann pyndaði og drap,“ segir Groberski. „En við vitum að það er ótrúlega auðvelt að verða sér úti um dýr á netinu.“