Fréttir

Hjólreiðamaðurinn í Glerárdal látinn

Mynd

Hjólreiðamaðurinn sem slasaðist í Glerárdal er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. 

Sjá frétt: Allar björgunarsveitir í Eyjafirði kallaðar í Glerárdal

Klukkan 18:32 barst tilkynning vegna slyss á Glerárdal við Akureyri þar sem hjólreiðamaður hafði slasast segir til tilkynningunni. 

Björgunarsveitir voru kallaðar til ásamt öðrum viðbragðsaðilum. Vegna aðstæðna var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar á vettvang til að aðstoða við flutning hins slasaða undir læknishendur, hinn slasaði var fluttur á Sak og var kominn þangað um klukkan 20:20 þar sem hann var úrskurðaður látinn. 

Í ljós kom að um veikindi var að ræða og er málið til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.

Lögreglan segir að ekki verði gefnar frekari upplýsingar um málið.