Fréttir

Hinn einstaki Jimothy vekur furðu og aðdáun: „Hvað er ég að horfa á“ - Sjáðu myndbandið

Mynd
Myndband náðist af Jimothy á flótta. Skjáskot/Instagram

Undraveran Jimothy hefur vakið furðu og aðdáun íbúa í borginni Seattle undanfarið. Virðist enginn vita nákvæmlega hvað hann er. Skoffín, skuggabaldur eða vanskapaður þvottabjörn? Hvað er eiginlega á seyði?

Eins og segir í frétt New York Post um málið þá eru íbúar borgarinnar Seattle, á vesturströnd Bandaríkjanna, furðu lostnir yfir furðuveru sem sést hefur á kreiki og náðst hafa myndbönd af.

Hafa gárungar meira að segja gefið verunni nafn: Jimothy og er um fátt annað talað í hinni regnblautu borg sem hingað til hefur verið þekkt fyrir Starbucks, Microsoft og grugg-rokk.

Ljóst er um er að ræða dýr sem er eitthvert afbrigði af þvottabirni. En miklu styttri en venjulegur þvottabjörn. Eins og þvottabjarnarkúla með fætur, rófu og höfuð en engan háls.

Mynd

„Hvað er ég að horfa á?“ segir kona sem náði myndbandi af Jimothy spretta úr spori og hverfa upp tröppur. Birti hún myndbandið á samfélagsmiðlinum Instagram.

Í öðrum myndbandi, sem var birt á Reddit, má sjá Jimothy læðupokast á svölum íbúðarhúss um nótt. Þá sést hann troða sér á milli tveggja rimla og hverfa úr mynd.

„Þetta er mesta Seattle skepna sem hægt er að ímynda sér,“ segir einn í athugasemd við færsluna. „Heita Jimothy sumarið,“ segir annar. „Það þarf að vernda hann sama hvað það kostar,“ sá þriðji. Augljóst er að fólk er mjög hrifið af Jimothy og vill honum vel. Jafn vel þó hann sé hálf  óhugnanlegur í útliti og hreyfingum.

Ekki hefur tekist að hafa uppi á Jimothy, rannsaka hann eða greina. Engu að síður grunar marga að Jimothy sé ekki skrímsli eða skoffín heldur þvottabjörn með sjaldgæfan erfðagalla sem kallast SSS, á ensku „short spine syndrom“ eða „stuttrar mænu heilkenni.“

Heilkennið er afar sjaldgæft og hefur aðallega fundist í hundum. Það er þegar hryggjarliðirnir þroskast ekki yfir í bein heldur haldast sem samanþjappað brjósk. Hundarnir eru búkstuttir og virðist eins og þeir séu ekki með neinn háls. Aðeins örfáir tugir hunda með slíkt heilkenni hafa fundist og er talið að það sé afleiðin innræktunar.

Þó að heilkennið hafi aðallega þekkst hjá hundum þá er vitað til þess að bæði kettir og sléttuúlfar hafi verið með það. Og nú kannski þvottabirnir líka?

Mynd