Fréttir

Grímur gáttaður á Vilhjálmi – „Hvers vegna Vilhjálmur vill ekki leyfa þjóðinni að kanna málið er mér ráðgáta“

Mynd
Vilhjálmur telur að Íslendingar geti leyst málið sjálfir en 109 ára tilraunir sýna annað.

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, skilur ekkert í Vilhjálmi Birgissyni, formanni SGS og Verkalýðsfélags Akraness að vilja ekki leyfa þjóðinni að sjá hvers konar samning hægt er að fá við Evrópusambandið. Annað gildi um auðmenn sem hafa hagsmuni af vaxtamun krónuhagkerfisins.

„Vilhjálmur berst gegn því að þjóðin fái að sjá hvað ESB samningur kynni að hafa í för með sér fyrir almenning á Íslandi. Hann telur að vextirnir, verðbólgan og verðtryggingin sé eitthvað sem við getum lagfært sjálf,“ segir Grímur í færslu á samfélagsmiðlum og vísar í ummæli Vilhjálms í Morgunblaðinu eftir fund nei-sinna á Akranesi í gær.

Ummæli Vilhjálms eru eftirfarandi: „Þessi þrjú atriði sem standa út af, sem eru vextir, verðtrygging og verðbólga, eru allt atriði sem við getum lagfært sjálf”

109 ára tilraunir

„Hann er ekki sá fyrsti sem hefur trú á mátt íslensku krónunnar og megin,“ segir Grímur og telur upp alla forsætisráðherra Íslands. En þeir eru:

Jón Magnússon (2), Sigurður Eggerz, Magnús Guðmundsson, Jón Þorláksson, Tryggvi Þórhallsson, Ásgeir Ásgeirsson, Hermann Jónasson (2), Ólafur Thors (6), Björn Þórðarson, Stefán Jóhann Stefánsson, Steingrímur Þórðarson, Emil Jónsson, Bjarni Benediktsson eldri (2), Jóhann Hafstein, Ólafur Jóhannesson (2), Geir Hallgrímsson, Benedikt Gröndal, Gunnar Thoroddsen, Steingrímur Hermannsson (2), Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Geir Haarde, Jóhanna Sigurðardóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Bjarni Benediktsson yngri (2), Katrín Jakobsdóttir og Kristrún Frostadóttir.

„109 ára tilraunir allra þessara forsætisráðherra hafa fært okkur háa vexti, verðbólgu og verðtryggingu,“ segir Grímur. „Hvers vegna Vilhjálmur vill ekki leyfa þjóðinni að kanna málið er mér ráðgáta. Ég get skilið að auðmenn, sem hafa hag af vaxtamun og öðrum „kostum” krónuhagkerfisins, vilji viðhalda sama kerfi en að verkalýðsleiðtogi berjist gegn því að þjóðin fái að skoða innihald samnings er mér algjör ráðgáta. Það eina sem er víst, ef Vilhjálmur og auðmenn Íslands ná sínu fram, er að verðbólgan og vextirnir verða áfram hærri en í nágrannalöndum okkar og verðtryggingin fer ekki fet.“