Fréttir

Bergþór er með félagið en ekki lóðina í hagsmunaskrá: „Þetta er ekki tímafrek aðkoma“

Mynd
Bergþór Ólason. Mynd: Facebook.

Kröfuhafar hafa farið fram á nauðungarsölu á þremur lóðum í Mosfellsbæ í eigu félagins Render Centium sem er í helmingseigu Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins. Heimildin greinir frá þessu í dag. 

Kröfurnar hljóða upp á rúmlega 981 milljónir króna. Bergþór er annar eigenda félagins ásamt föður sínum. Um er að ræða lóðirnar Bjarkarholt 32 og 34 í Mosfellsbæ, beint á móti Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. 

Bergþór segir í samtali við Heimildina að hann hafi komið að kaupunum á lóðunum en ekki uppbyggingarhlutann, það sé í höndum föður síns og bræðra. „Þetta er ekki tímafrek aðkoma,“ segir hann. Hann á ekki von á því að nauðungarsölubeiðnin fari fram, í þessum geira séu leiðir til að leysa svona mál. 

Bergþór hefur ekki uppfært upplýsingar um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings í hagsmunaskrá Alþingis frá árinu 2018. Í hagsmunaskránni segir að hann sé ekki í starfsemi sem sé rekin samhliða alþingismanns og sé tekjumyndandi fyrir hann eða félag sem hann á sjálfur eða er meðeigandi í. Þá segir að hann eigi enga hagsmuni í fasteign, sem er að einum þriðja eða meira í eigu alþingismanns eða félags sem hann á fjórðungshlut í eða meira, eru þar undanskilin íbúðarhúsnæði og sumarhús. Hann er þó með uppgefið eignarhlut sinn í Byggingalausnir ehf. sem er eigandi Render Centium.

„Ég verð nú að viðurkenna að ég þarf bara að glöggva mig á þessu með skrifstofu Alþingis. Það er ekki markmið annað en að þetta sé allt skýrt og rétt. Ef að alþingismenn sem tengjast byggingafélögum þurfa að gefa þær upp þá auðvitað geri ég það.“