Fréttir

Atli Freyr á meðal níumenningana í haldi – Þrír Íslendingar

Mynd
106 kílóum af kókaíni var smyglað frá Brasilíu.

Atli Freyr Fjölnisson er einn þeirra sem er í haldi vegna Straumsvíkursmyglsins. Brasilískir kafarar komu til landsins til að sækja fíkniefnin.

RÚV greinir frá þessu.

Alls sitja níu manns í haldi vegna Straumsvíkurmálsins, það er vegna smygls af 106 kílóum af kókaíni. Þrír Íslendingar og sex útlendingar. Á meðal þeirra eru tveir brasilískir kafarar en einnig Rúmenar.

Fíkniefnin voru falin í sjókistu súrálskips sem kom frá Brasilíu. Afar flókið reyndist að sækja efnin í sjókistuna.

Eins og áður segir er Atli Freyr Fjölnisson á meðal þeirra þriggja Íslendinga sem eru í haldi vegna málsins. Hann hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í umdeildu fíkniefnamáli árið 2015. Hinir eru Lárus Freyr Einarsson og Lúther Ólason.