Fréttir

Tíu verstu fylkjunum í Bandaríkjunum öllum stjórnað af Repúblikönum

Mynd
Fátækt, glæpir og fíkniefnanotkun einkenna fylkin sem Repúblíkanar stjórna. Mynd/Getty

Tíu verstu fylki í Bandaríkjunum eru öll svokölluð „rauð fylki“, það er fylki þar sem Repúblikanar ráða lögum og lofum. Tennessee er versta fylkið samkvæmt nýrri greiningu.

Sjónvarpsstöðin CNBC lét gera greiningu á lífsgæðum í bandarískum fylkjum. Var greiningin byggð á ýmsum þáttum svo glæpatíðni, fíkniefnavanda, heilbrigðisþjónustu, mengun, mannréttindi, verðlag, laun, orlofsréttur, barnaumönnun og fleira. Alls var hægt að skora 290 stig á kvarða sem bar búinn til.

Á botninum er Tennessee með aðeins 64 stig. Það er langneðsta fylkið á listanum. Á meðal þess sem dregur Tennessee niður er hæsta ofbeldisglæpatíðni í Bandaríkjunum og þriðja hæsta fíkniefnanotkunin.

Þá koma Texas með 78 stig, Indiana 82, Louisiana og Georgía 89, Utah 95, Missouri 98, Alabama 99 og Oklahoma og Arkansas með 103 stig.

Allt eru þetta fylki í suðurhluta og um miðbik Bandaríkjanna sem stjórnað er af Repúblikönum. Það er svokölluð „rauð fylki“ og öll veittu þau Donald Trump kjörmenn sína í síðustu forsetakosningum.