Fréttir

„Það er ekki óheimilt að auglýsa verslun eða eitthvað svoleiðis ef þú ert ekki að auglýsa vörumerkin sem eru ólögleg“

Mynd

Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar segir að nokkuð margar kvartanir hafi borist til nefndarinnar vegna auglýsinga Smáríkisins, sem meðal annars hafa verið sýndar í Ríkissjónvarpinu og þá meðal annars í kringum leiki Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta sem nú stendur yfir.

Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir Elfa Ýr það mat Fjölmiðlanefndar að þær auglýsingar sem hafi verið tilkynntar séu ekki skýr brot á lögum sem banni áfengisauglýsingar. 

Meðal þeirra sem kvartað hafa opinberlega undan birtingu auglýsinga í Ríkissjónvarpinu er Adolf Ingi Erlingsson, sem áður starfaði sem íþróttafréttamaður hjá RÚV. Sendi hann Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra fyrirspurn vegna málsins:

Sjá einnig: Adolf Ingi ósáttur og sendir Stefáni bréf: „Finnst þér þetta virkilega forsvaranlegt?“

Netverslanir með áfengi eru á þriðja tug og Smáríkið þeirra umsvifamest, og opnar sjöunda afhendingastað sinn innan skamms í Reykjavík. Leikarinn Pálmi Gestsson leikur stórt hlutverk í auglýsingum Smáríkisins.Elfa Ýr segir kvartanir vegna auglýsinga fyrirtækisins hafa aukist  í kjölfar þess að Vilhjálmur Forberg Ólafsson forsvarsmaðurSmáríkisins var sakfelldur í héraðsdómi fyrir sölu á hvítvínsbelju. Dóminum hefur verið áfrýjað.

„Það er ekki óheimilt að auglýsa verslun eða eitthvað svoleiðis ef þú ert ekki að auglýsa vörumerkin sem eru ólögleg,“ segir Elfa Ýr við Morgunblaðið. „Það fer auðvitað eftir því hvernig það er gert,“  svarar hún aðspurð hvort sé heimilt fyrir áfengisverslanir að auglýsa starfsemi sína. „Það sem við höfum séð eru allavega ekki klár brot út frá fjölmiðlalögum. Við erum kannski ekki búin að taka afstöðu til allra auglýsinga en allavega þær auglýsingar sem við höfum fengið og höfum skoðað höfum við ekki talið vera brot á lögum. Þetta er sama og þegar nikótínsöluaðilarnir voru að dúkka upp. Þá kom líka mikið af kvörtunum þegar söluaðilarnir sjálfir voru að auglýsa sig. Þá sögðum við það sama, það má auglýsa sig en það má ekki auglýsa vöru sem ólöglegt er að auglýsa.“ 

Elfa Ýr segir ekki hægt að fullyrða að auglýsing frá áfengisnetverslun sem einungis seldi áfengi myndi teljast áfengisauglýsing samkvæmt lögum, en nær allar verslanirnar selja einnig annað en áfengi.

„Ég get eiginlega ekki svarað því. Það er eitthvað sem þyrfti bara að reyna á sérstaklega. Eins og með nikótínið, það eru til nikótínlausir púðar og þegar það er verið að auglýsa þá er viðkomandi kannski að selja bæði löglega og ólöglega vöru. Það hefur í rauninni ekki reynt á það þegar það er bara ólögleg vara sem verið er að selja.“ 

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.