Fréttir

Siggi hakkari dæmdur enn á ný - Sveik út lúxusvarning og samlokugrill fyrir tugi milljóna

Mynd

Sigurður Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, hefur hlotið enn einn dóminn, að þessu sinni fyrir umfangsmikla og þaulskipulagða svikahrinu á árunum 2019–2021 þar sem hann sveik út lúxusvarning fyrir tugi milljóna. Sigurður var í dag dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir brot sín en refsingin er skilorðsbundin að öllu leyti þar sem óhóflegur dráttur varð á rannsókn og meðferð málsins.

Ákæruliðirnir eru ævintýralega margir og taldi upp á 17 blaðsíðum í dómi héraðsdóm, en þeim svipar helst til fléttu af fyrirtækjaskrá, vörulista raftækjaverslunar og lúxusbæklings frá fríhöfninni. Sigurður játaði skýlaust sök í málinu.

Svikin fóru jafnan fram með áþekkum hætti þar sem Sigurður villti á sér heimildir og kom fram í nafni ýmissa fyrirtækja. Kynnti hann sig gjarnan sem framkvæmda- eða fjármálastjóra og falaðist eftir reikningsviðskiptum við fyrirtæki sem hann svo nýtti til að svíkja út vörur og þjónustu. Reikningar vegna þessa voru svo aldrei greiddir.

Í sumum tilvikunum lét hann sér ekki nægja að skreyta sig með fölskum starfstitlum heldur framvísaði fölsuðum ársreikningum til að selja lygina. Eins sendi hann ítrekað falsaðar tilkynningar til fyrirtækjaskrár þar sem hann tilkynnti um stofnun einkahlutafélags, hækkun á hlutafé úr 500.000 kr. í 50 milljónir eða tilkynnti um afsögn endurskoðanda.

Fjölmörg fyrirtæki féllu fyrir lygum Sigurðar og tókst honum þannig að svíkja út varning sem er metinn á allt að fjórar milljónir. Eins tókst honum með sviksamlegum hætti að fá bílaleigubifreiðar til afnota mánuðum saman án þess að greiða krónu fyrir. Allt í allt voru svikin metin á 30 milljónir króna.

Upptalning á ágóða brotanna er mjög skrautleg en við rannsókn málsins lagði lögregla meðal annars hald á stór sjónvörp, hljóðkerfi frá Sonos og Bose, Cino professional kaffivél, iPhone-farsíma, fjóra Bourgie-lampa, fimm Rolex-úr ásamt fleiri verðmætum úrum, Louis Vuitton-, Prada- og Hugo Boss-skó, Burberry-jakka, fjölmargar merkjaúlpur, skóburstunarvél og tvö samlokugrill. Eins var hald lagt á áfengisbirgðir sem líkja mætti við vínkjallara í smækkaðri mynd en þar mátti meðal annars finna flöskur af Dom Perignon, Belluga Vodka, Diamond, Vodka, kassa af Chateau Batailley, 26 ára Glenfiddich Single Malt, The Macallan Rare Cask-viskíflösku og flösku af Louis XIII.

Við húsleit fundust sex piparúðar, tvær útdraganlegar kylfur og rafbyssa.

Dómurinn rakti að frá árinu 2014 hefði Sigurður í fjórgang verið dæmdur til fangelsisrefsingar meðal annars fyrir kynferðisbrot, fjárdrátt, skjalafals og fleira. Eins er tekið fram að Sigurður hafi í mars á þessu ári verið dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals og fjársvik í Danmörku. Það var metið Sigurði til málsbóta að hann játaði skýlaust en á sama tíma horfði það til refsiþyngingar að brot hans væru umfangsmikil, skipulögð og að heildarandlag þeirra næmi hátt í 30 milljónum króna. Þó að málið væri umfangsmikið taldi dómari þó að óhóflegur dráttur hefði orðið á rannsókn og meðferð þess. Ekkert benti til þess að Sigurði væri sérstaklega um það að kenna. Þar með þótti rétt að dæma hann í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Sigurður þarf eins að greiða milljónir í bætur til nokkurra þeirra fyrirtækja sem hann sveik, auk rúmlega fjögurra milljóna í málsvörn sína og annan sakarkostnað.

Dóminn má lesa hér.