María Magnúsdóttir fékk þær erfiðu fréttir þann 18. mars síðastliðinn að hún væri með bráðahvítblæði. Hún hóf strax meðferð hér heima sem hefur verið bæði löng og krefjandi. María dvaldi í um átta vikur á spítala og hefur barist af ótrúlegum styrk.
Þann 4. ágúst heldur hún til Lundar í Svíþjóð ásamt æskuvinkonu sinni, Jóu, þar sem hún mun undirbúa beinmergskipti. Meðferðin hefst 8. ágúst, á afmælisdegi Maríu, og gert er ráð fyrir að hún þurfi að dvelja þar í að minnsta kosti þrjá mánuði.
„Þessi greining kom á sérstaklega erfiðum tíma. Fyrir ekki svo löngu gekk María í gegnum baráttu við brjóstakrabbamein og á sama tíma vakti hún og svaf við hlið elsku dóttur sinnar, Birtu Bjarkar, sem glímdi sjálf við krabbamein og lést í janúar síðastliðnum. Það er erfitt að ímynda sér þær raunir sem hún hefur þurft að takast á við,“
segir í færslu á Facebook um söfnun sem sett hefur verið af stað fyrir Maríu. Birta Björk var 23 ára þegar hún lést. Sonur Maríu, Magnús Baldur, verður eftir hér heima meðan hún er meðferð í Svíþjóð.
„Það er stórt skref að yfirgefa heimilið sitt, elsku Magnús Baldur, fjölskyldu og allt sem er kunnuglegt til að takast á við svona krefjandi meðferð. Þó að heilbrigðiskerfið standi vel að baki hennar fylgir þessu ýmiss konar kostnaður og fjárhagslegt álag sem bætist ofan á allt hitt. Með hennar leyfi viljum við því biðja þá sem geta og vilja að leggja henni lið. Engin upphæð er of lítil því eins og við vitum öll: Margt smátt gerir eitt stórt. Ef þú hefur tök á að styrkja Maríu á þessum erfiða kafla væri það henni ómetanleg hjálp.“
Reikningur er á nafni og kennitölu Maríu:
Kennitala: 080869-4019
Reikningsnúmer: 0370-13-056858