Fréttir

Óttast fyrirhugaðar breytingar: „Númerslausar bifreiðar, bílflök og aðrir lausamunir langvarandi vandamál"

Mynd

Fyrrverandi formaður Umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs hefur áhyggjur af því að breytingar sem fyrirhugaðar eru á reglugerð um hollustuhætti séu vanhugsaðar. Þar standi til að fella niður skýra heimild sem heilbrigðisnefndir hafa í dag til að láta fjarlægja lausamuni, númeralausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti að undangenginni viðvörun. Bergur Þorri Benjamínsson lýsir áhyggjum sínum í umsögn um breytingarnar í Samráðsgátt stjórnvalda sem og á Facebook.

Umsögn Bergs Þorra varðar 3. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar en þar segir: 

„Heilbrigðisnefnd er heimilt að láta fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti að undangenginni viðvörun, svo sem með álímingarmiða með aðvörunarorðum. Tilkynna skal lóðareiganda eða eiganda lausamunar um málið eftir því sem kostur er, til að stuðla að því að hlutaðeigandi hafi fengið vitneskju um málið og gefist færi á að bregðast við áður en hluturinn er fjarlægður, sbr. einnig reglugerð um meðhöndlun úrgangs.“

Telur Bergur að að niðurfelling heimildarinnar sé afturför í umhverfis- og hollustuvernd. Í umsögn hans segir: 

„Að mínu mati gæti þessi breyting reynst afturför í umhverfis- og hollustuvernd. Reynslan sýnir að víða í íbúðarhverfum og sérstaklega iðnaðarhverfum eru númerslausar bifreiðar, bílflök og aðrir lausamunir langvarandi vandamál sem hafa neikvæð áhrif á ásýnd hverfa og lífsgæði íbúa. Núgildandi heimild hefur verið mikilvægt úrræði til að bregðast við slíkum tilvikum.

Ég tel því mikilvægt að áður en ákvæðið er fellt brott liggi skýrt fyrir hvort sambærileg og jafnvirk heimild sé fyrir hendi annars staðar í lögum eða reglugerðum. Að öðrum kosti er hætta á að eftirlit veikist og að erfiðara verði að ná fram nauðsynlegum úrbótum.“

 

 

Bergur Þorri vekur eins athygli á málinu á sinni persónulegu Facebook-síðu þar sem hann bendir jafnframt á umsögn sem Ásthildur Sturludóttir, fráfarandi bæjarstjóri Akureyrar, ritaði á meðan hún var enn í embætti. Ásthildur bendir á að umsögn sinni að sveitarfélög hafi ekki sömu þvingunarheimildir og heilbrigðisnefndir til að bregðast við t.d. slæmri umgengni, bílhræjum og brotum á samþykktum. Með tillögðum breytingum muni þessi mál enda á borði sveitarstjórna sem hafi ítrekað óskað eftir frekari heimildum til að bregðast við þessum vanda sem „bara stækkar hjá all flestum sveitarfélögum“. Greinargerð með tillögðum breytingum vísi aðeins til þess að sveitarfélög hafi heimild til að gera kröfu um ráðstafanir vegna umgengni og umhirðu utan húss, en þvingunarúrræði verði væntanlega á höndum Umhverfis- og orkustofnunar. 

„Í ljósi reynslunnar er skýr þörf á að styrkja frekar þvingunarheimildir vegna umgengni utan húss, t.a.m. vegna bílhræja heldur en að veikja þær.“