Fréttir

Móðir hins myrta Kinu Rochford krefst réttlætis fyrir son sinn – Lék með Þór í Þorlákshöfn

Mynd
„Ég þerf réttlæti fyrir hann. Skilaboð mín eru þau að ef þú veist eitthvað, ef þú sást eitthvað, þá þarftu að segja eitthvað,“ sagði hin syrgjandi móðir.

Móðir körfuknattleiksmannsins Kinu Rochford, sem var myrtur í New York á föstudag, krefst réttlætis. Rochford lék um tíma með Þór í Þorlákshöfn.

Rochford, sem var 35 ára gamall, var skotinn í höfuðið eftir að hafa rifist við morðingja sinn í Harlem hverfinu í New York á föstudagskvöld. Morðinginn er ófundinn.

„Ég þarf að finna þann sem gerði þetta við barnið mitt,“ sagði Eden Rochford, móðir Kinu, á minningarathöfn á Banneker körfuboltavellinum í Brooklyn á þriðjudag.

„Ég þerf réttlæti fyrir hann. Skilaboð mín eru þau að ef þú veist eitthvað, ef þú sást eitthvað, þá þarftu að segja eitthvað,“ sagði hin syrgjandi móðir.

Kinu var yngstur þríbura og átti sjálfur tæplega 1,5 árs gamlan son. Körfubolti fylgdi honum alla ævi.

„Hann á fallegan ungan son sem lítur út alveg eins og hann,“ sagði Eden.

Atvinnumannaferill Kinu hófst árið 2013 í Hollandi. Hann spilaði víða um heim, svo sem í Frakklandi, Bretlandi, Sviss og Kósóvó. Tímabilið 2018 til 2019 lék hann með Þór í Þorlákshöfn. Þá endaði liðið í 6. sæti deildarinnar og komst í undanúrslit útsláttarkeppninnar.

Eftir skotárásina var Kinu fluttur á sjúkrahús en það var ekki hægt að bjarga honum. Tveir aðrir slösuðust í árásinni, 28 ára maður og 22 ára kona, sem áttu ekki aðild að rifrildinu. Lögreglan telur að rifrilidið hafi stafað út af konu sem Kinu og morðinginn þekktu báðir.