Kaffistofa Samhjálpar stendur frammi fyrir alvarlegum húsnæðisvanda í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Leysa þarf húsnæðisvandann strax.
Í frétt Samhjálpar kemur fram að Kaffistofan sem opin er alla daga ársins þjónar um 100-150 manns á dag með mat, skjól og tengingu við aðra aðstoð. „Að óbreyttu er hætta á rofi í þjónustu við hóp sem hefur lítið svigrúm til að bíða eftir löngu ferli.“
Samhjálp eru góðgerðarsamtök að stærstum hluta rekin fyrir sjálfsaflafé og kostnaður samtakanna vegna málsins og vinnu við endurbætur á Grensásveg 46 er orðinn að minnsta kosti 60 milljónir þar með talið eru 10 mánuðir af leigugreiðslum. Að mati lögmanns Samhjálpar felur úrskurður úrskurðarnefndarinnar í sér alvarlega annmarka hvað varðar málsmeðferð, nálgun og brot gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og stjórnarskrárinnar.
Samhjálp hefur nú þegar hafið undirbúning að kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna málsins.
„Fái úrskurður úrskurðarnefndarinnar að standa óhaggaður, felur hann í sér veigamikla breytingu á skipulagsvaldi Reykjavíkurborgar. Í reynd veikir hann heimildir 44. gr. skipulagslaga í framkvæmd, þar á meðal þegar þegar framkvæmd felur aðallega í sér innanhúsbreytingar. Ófyrirséð óvissa og kostnaður kann að fylgja.
Þrátt fyrir annmarka úrskurðarins útilokar hann ekki starfsemi Samhjálpar á svæðinu né kemur í veg fyrir starfsleyfisveitingu í núverandi húsnæði að Grensásvegi 46 til bráðabirgða. Nauðsynlegt er að tryggja bráðabirgðastarfsleyfi fyrir starfsemi Samhjálpar að Grensásvegi 46 samhliða því að leitað verði að varanlegu húsnæði. Pólitísk samstaða um að finna lausn á málinu er mikilvæg, enda er Reykjavíurborg fyrir öll! Ef starfsemi Samhjálpar er ekki leyfð að Grensásvegi 46 er hætta á að skilaboðin út á við verði önnur: Reykjavík er borg þar sem fátækir mega bara vera til í útjaðrinum. Það viljum við ekki!“