Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, og Egill Helgason, fjölmiðlamaður, eru ekki á einu máli um ágæti boðaðrar gjaldtöku á baðlón. Jóhannes Þór segir skattlagninguna skaða fjárfestingar en Egill segir sjálfsagt að innheimta skatt af lúxus eins og baðlónum.
„Ofan á boðað náttúru- og innviðagjald hefur nú verið tilkynnt í fjármálaáætlun að hækka skuli virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Baðlón, ein mikilvægasta og sérstæðasta ferðaþjónustuvara Íslands, skal nú verðlögð hærra sem skaðar m.a. fjárfestingar sem lagt hefur verið í, atvinnutækifæri á landsbyggðinni og áfangastaðinn Ísland í heild,“ segir Jóhannes Þór í færslu á samfélagsmiðlum.
Gegn loforðum
„Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu skal sem sagt hækkaður þvert á skýr loforð ríkisstjórnarinnar. Í ár bjóðast ferðaþjónustufyrirtækjum því tvær nýjar skattahækkanir. Hvað ætli þær verði margar á sama tíma að ári?“ spyr Jóhannes Þór og vísar í grein sína á Vísi þar sem hann krefst stöðugra rekstrarumhverfis fyrir ferðaþjónustuna.
Egill Helgason, fjölmiðlamaður, svarar Jóhannesi Þór í athugasemdum við færsluna og segir að skattlagningin eigi fullan rétt á sér.
„Það er nú sjálfsagt mál að innheimta skatt af lúxus eins og baðlónum,“ segir Egill. „Virðist líka vera góður arður af þeirri starfsemi. Hvað kostar annars í Bláa lónið? (sem nb er að kaupa upp baðstaði út um landið)“
Lúxus ætti að skattleggja hátt
Jóhannes Þór svaraði þessu og sagði skattinn allan fara út í verðið.
„Ef þér finnst verðið hátt þá ættirðu máske að athuga að þú ert að mæla með því að verðið hækki enn meira. VSK er neytendaskattur sem fer allur ut í verðið, hann er ekki innheimtur af fyrirtækinu,“ segir Jóhannes Þór.
En Egill stendur fast við sitt.
„Almennt er það svo að lúxus ætti að skattleggja hátt - og þetta er vissulega lúxus - en nauðsynjar lágt. Svo má bara mæla með okkar ágætu sundlaugum. Þær eru merk samfélagsþjónusta,“ segir hann.