Fréttir

Engar eignir fundust í þrotabúi Brand Vín & Grill – Eigandinn þekktur athafnamaður

Mynd
Hafnartorg Gallery. Mynd: Google Maps.

Félagið Brand Vín & Grill ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 22. apríl á þessu ári en skiptum í félaginu lauk þann 8. júlí síðastliðinn, samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu. Engar eignir fundust í búinu en lýstar kröfur námu tæplega 27 milljónum króna. 

Félagið rak samnefndan veitingastað í mathöllinni Hafnartorg Gallery, að Geirsgötu 17 í Reykjavík. Staðurinn er þó enn í rekstri. 

Annar skráðra eigenda er Kristján Ólafur Sigurðarson (áður Sigríðarson) en hann er þekktur veitinga- og athafnamaður. Kristján var stofnandi Wok on veitingastaðakeðjunnar sem varð gjaldþrota árið 2024 en hluti staðanna var opnaður á ný undir merkjum Wok to Walk. Áður en Wok on varð gjaldþrota færðist félagið að öllu leyti í eigu víenamska athafnamannsins Quang Le sem hefur verið undir lögreglurannsókn í meira en tvö ár, m.a. vegna gruns um vinnumansal. 

Skattsvik í rekstri MK Capital

Árið 2024 var Kristján dæmdur í 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 87 milljóna sektar fyrir skattsvik í rekstri félagsins MK Capital. Kristján var sakaður um að hafa ekki skilað virðisaukaskattskýrslu á lögmæltum tíma, ekki skilað virðisaukaskatt í ríkissjóð, ekki skilað staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna og eins var hann sakaður um að hafa skilað röngum skattframtölum gjaldárin 2018, 2019 og 2020 með því að vantelja tekjur um rétt tæpar 60 milljónir.

Sjá nánar hér