Fréttir

Eitt umtalaðasta fjársvikamál seinni ára sagt vera á lokametrunum – Ásta bíður enn eftir ákæru

Mynd

Sumarið 2023 sat grunnskólakennarinn Ástríður Kristín Bjarnadóttir (Ásta Bjarnadóttir) 12 vikur í gæsluvarðhaldi vegna gruns um fjársvik gagnvart 11 karlmönnum, að fjárhæð um 25 milljónir króna. Talið er að fjársvik hennar séu mun umfangsmeiri en rannsókn lögreglu leiddi í ljós að á tímabilinu 2016 til 2023 lögðu hátt í 400 karlmenn samtals um 200 milljónir króna inn á reikninga hennar. Talið er að hún hafi tapað öllum peningunum við fjárhættuspil, en Ásta þjáist, eða þjáðist, af spilafíkn. 

Ásta kynntist mörgum brotaþolum á stefnumótavefnum Einkamál og fékk þá til að lána sér peninga sem hún greiddi aldrei til baka. Í verstu tilfellunum komst hún yfir rafræn skilríki brotaþola, stofnaði til yfirdráttarskulda í þeirra nafni og millifærði háar upphæðir á eigin reikninga. Í tilfellum nokkurra brotaþola námu meint fjársvik á aðra milljón króna hjá hverjum og einum, en varðandi upphæðir skal bent á að þessi alvarlegri brot ná a.m.k. aftur til ársins 2021. 

Sjá einnig: Hátt í 400 íslenskir karlmenn hafa lagt yfir 200 milljónir inn á bankareikninga spilasjúkrar konu

DV ræddi ennfremur árið 2023 við mann sem sagði Ástríði hafa svikið út úr sér þrjár milljónir króna, sjá hér

Ævintýralegur dráttur á málsmeðferð

Rannsókn lauk á þeim hluta meintra brota Ástu sem varða fjársvik gagnvart 11 mönnum fyrir um 25 milljónir króna haustið 2023 og var þá málið sent til ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri meint brot hennar voru þá áfram til rannsóknar. En engin ákæra hefur verið gefin út ennþá, þremur árum eftir að Ásta sat í gæsluvarðhaldi. 

Þann 10. september árið 2024 staðfesti Hildur Sunna Pálmadóttir, þáverandi aðstoðarsaksóknari hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, í svari við fyrirspurn DV, að ákæra gegn Ástu væri í smíðum. 

DV hefur traustar heimildir fyrir því að í október árið 2025 sagði lögregla ákæru gegn Ástu vera svo að segja klára. 

DV sendi Hildi aðra fyrirspurn um málið í þessari viku, en Hildur gegnir núna embætti aðstoðarlögreglustjóra. Í fyrirspurninni spurði DV hvort málið hafi verið fellt niður eða hvort ákæra hafi verið gefin út. Svar Hildar var eftirfarandi: 

 „Unnið er að því að klára  málið og von á að því ljúki í sumar.“

DV spurði þá hvort fyrirséð væri hvort málinu ljúki með ákæru eða niðurfellingu. Þeirri fyrirspurn var ekki svarað fyrir birtingu þessarar fréttar.