Fréttir

Einar segir þennan dag verða vendipunkt í sumar - „Ég held að það verði SUPER-MONDAY“

Mynd
Einar Bárðarson

Einar Bárðarson framkvæmdastjóri SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði og viðburðahaldari með meiru, gerir sér mat úr frétt Vísis í dag um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og miðasölu á hátíðina sem farið hefur hægt af stað. Segir Einar málefnið áhugavert viðfangsefni sem þoli greiningu og „úr því að greiningardeildir bankanna eru uppteknar af öðru ætla ég að taka þennan bolta.“

Segir Einar að það hafi verið gríðarlegt álag á miðakaupendum í vor og sumar.

„Stórtónleikarnir Bergmál tóku mikið til sín. Þar mættu, ef marka má fréttir, um 20 þúsund borgandi gestir. En tónleikarnir kostuðu ekki bara miða. Þeir kröfðust líka skipulagningar; fólk þurfti að kynna sér samgöngur, bílastæði, aðgengi og ýmislegt fleira. Þeir tóku því bæði mikið fjármagn og mikla athygli.

Rétt á undan hélt Bubbi Morthens tvo uppselda stórtónleika í Laugardalshöll. Skömmu áður hafði Herra Hnetusmjör fyllt Laugardalshöllina og Friðrik Dór var með troðfullan Kaplakrika 16. júní. Þegar upp er staðið hafa bæði athygli og ráðstöfunarfé miðakaupenda farið í stór verkefni á stuttum tíma.“

Þegar þessari bylgju lauk fóru stóru sumarhátíðirnar af stað eins og Einar rekur í færslu sinni:

„Lopapeysan á Akranesi stækkaði hátíðarsvæðið sitt og miðasalan virtist taka verulegan kipp vikuna fyrir hátíðina. Þar hjálpaði veðrið til og mætingin var mjög góð. Síðan kom Kótelettan af fullum krafti, einnig með stækkað hátíðarsvæði og gríðarsterka dagskrá. Veðrið lék hana reyndar ekki alveg eins vel, en þrátt fyrir það seldist hátíðin nánast upp.  Þetta er umhverfið sem Þjóðhátíð er að keppa í.

Miðakaupendur hafa verið undir miklu álagi allt sumarið. Framboðið af stórum viðburðum hefur verið óvenju mikið og gæðin sömuleiðis.

Dagskráin á Þjóðhátíð dregur fólk vissulega til sín, en ekki síður hefðin og allar seremóníurnar sem gera hana einstaka; brekkan, brennan, blysin, flugeldarnir og sú rómantík sem umlykur hátíðina. Að mínu mati er upplifunin á engan hátt síðri en áður, þó sjálfsagt megi deila um einstaka dagskrárliði. FM95Blö, sem hafa verið fastagestir á Þjóðhátíð undanfarin ár, hafa nú stimplað sig inn á Akureyri með sannkölluðu „stadium giggi“ og skapa þar ákveðna samkeppni. En það er auðvitað ekki í fyrsta sinn sem Þjóðhátíð þarf að takast á við samkeppni.“

Einar segir veðrið í fyrra og hittifyrra ekki hafa hjálpað Þjóðhátíð. „Á móti kom þó vel í ljós hversu einstakir gestgjafar Vestmannaeyingar eru þegar mæður og ömmur í bænum tóku að sér að þurrka fatnað fyrir ókunnuga gesti. Ég geri ekki ráð fyrir að fólk ætli sér ekki á Þjóðhátíð. Ég held einfaldlega að miðakaupendur hafi verið á stöðugum spretti allt sumarið. Síðan hefur veðrið verið blautt og leiðinlegt mestallan tímann og það hvetur fólk sjaldnast til að taka skyndiákvarðanir um útihátíðir.“

Einar spáir því að einn dagur verði verðipunkturinn og skynsamlegt að miðasölukerfi séu með tæknimann á vakt þann dag:

„Mín tilfinning er sú að mánudagurinn 27. júlí verði vendipunkturinn.

Þá mun skemmtanaþyrst fólk opna langtímaveðurspána, kíkja á stöðuna á bankabókinni og taka ákvörðunina. Ég held að það verði SUPER-MONDAY miðakaupanna. Það væri því skynsamlegt ef miðasölukerfin væru með tæknimenn á vakt þann dag.“