Fréttir

Bílstjóri í akstursþjónustu fatlaðra misnotaði skjólstæðing sem sagðist gera „allt til að fá rauðvínið sitt“

Mynd
Héraðsdómur Norðurlands vestra

Bílstjóri á áttræðisaldri hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu með andlega fötlun sem naut þjónustu sveitarfélags á Norðurlandi. Maðurinn, Júlíus Rúnar Þórðarson, starfaði sem verktaki hjá sveitarfélaginu og sá meðal annars um að aka öldruðu og fötluðu fólki til dagvistunar og færa þeim mat. Héraðsdómur Norðurlands vestra taldi Júlíus hafa nýtt sér aðstöðumun á sér og konunni, sem og áfengisfíkn hennar, til að fá hana til kynferðismaka.

Málið kom upp í október árið 2023 þegar starfsmaður félagsþjónustu heimsótti konuna og sá að hún hafði verið að drekka rauðvín. Starfsmaðurinn spurði hvaðan konan hefði fengið vínið og hvernig hún hefði greitt fyrir það. Upplýsti konan þá að það hefði verið Júlíus sem keypti fyrir hana vínið og að hann hefði viljað fá greitt með öðrum hætti en með peningum. Nánar tilgreint sagði konan að Júlíus „vildi ríða“.

Starfsmaðurinn greindi yfirmanni sínum frá þessu samtali sem heimsótti þá konuna til að fá nánari skýringar. Konan sagðist þá glíma við áfengisfíkn og að hún „gerði allt til að fá rauðvínið sitt“.

Taldi konan sig háða Júlíusi hvað akstur, matarsendingar og aðra þjónustu varðaði. Óttaðist hún að þjónustan félli niður ef hún neitaði honum. Ef hún neitaði að veita honum kynlífsgreiða þá hafi hann sagst eiga inni hjá henni.

Júlíus neitaði alfarið sök í skýrslugjöf hjá lögreglu og sagðist aldrei hafa stundað kynlíf með konunni. Lögregla fann þó sæðisbletti á sængurfatnaði konunnar sem innihéldu erfðaefni bílstjórans. Áfram reyndi Júlíus að neita og sagðist ekki geta útskýrt hvernig sæði hans hefði komist í lakið. Hann breytti svo framburði sínum fyrir dómi og viðurkenndi að hafa haft samræði við konuna en sagði það hafa verið með fullu samþykki. Hann og konan hefðu þekkst í um 35 ár og hafi honum ekki verið kunnugt um andlegar skerðingar hennar.

Af málsatvikum eins og þeim er lýst í dómi, þar sem upplýsingar eru afmáðar í þágu persónuverndar, má ráða að konan hafi lent í veikindum fyrir nokkrum árum og að afleiðingar veikindanna séu veruleg fötlun sem felst einkum í skertu skammtímaminni. Lögreglumaður sem ræddi við konuna taldi það augljóst að konan glímdi við skerðingar en forstöðukona hjá sveitarfélaginu taldi að í stuttu samtali gæti skerðingin farið fram hjá fólki en hún væri þó augljós í lengri samtölum.

Júlíus reyndi að bera því við að hann hafi verið ófær um að lesa í aðstæður vegna einhverfueinkenna. Dómurinn taldi þó ósannað að bílstjórinn væri með einhverfurófsröskun og eins hafi matsmaður tekið fram að þau einkenni sem Júlíus er með komi ekki í veg fyrir að hann geti skilið samþykki, mörk og valdaójafnvægi.

Taldi dómurinn sannað að Júlíus hafi vitað af fötlun konunnar. Þar með hafi hann nýtt sér yfirburðastöðu gagnvart henni og lofað henni áfengi gegn kynlífi. Vegna fötlunar, áfengissýki og aðstöðumunar hafi konan ekki getað spornað við verknaðinum eða veitt samþykki af frjálsum vilja.

Júlíus var dæmdur í þriggja ára fangelsi og þarf einnig að greiða konunni tvær milljónir í miskabætur og rúmlega 7,7 milljónir í sakarkostnað.