Fréttir

Barnapía í vanda eftir að hafa tekið myndband af ungabarni snerta á sér ber sköpin

Mynd
Cranmer var handtekin og ákærð fyrir misnotkun og framleiðslu barnaníðsefnis. Skjáskot/Facebook

Ung bandarísk barnapía hefur verið handtekin og ákærð fyrir kynferðislega misnotkun smábarns í hennar umsjá. Barnapían kenndi hins vegar barninu, ungum dreng, um að hafa snert á sér sköpin þegar hún sat á klósettinu en myndband af atvikinu birti hún á Snapchat.

Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Barnapían, hin 25 ára Victoria Anne Cranmer, frá New Jersey fylki á austurströnd Bandaríkjanna hefur verið handtekin og ákærð fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hún var að passa.

Eins og sást í myndbandi sem Cranmer birti á samfélagsmiðlinum Snapchat mátti sjá lítið barn snerta á henni ber sköpin þar sem hún situr á klósettinu.

Rannsókn á málinu hófst þann 20. maí síðastliðinn þegar kona, sem er ekki nafngreind en Cranmer passaði oft fyrir, fann myndband á iPhone síma sem hafði áður verið í eigu Cranmer. Sást samstundis að um var að ræða Cranmer sjálfa því að húðflúrin hennar voru mjög sýnileg. Það er myndir af eldingu, sveppi og brjóstum.

Breytt hegðun

Konan lét lögreglu hafa símann og hófst þá rannsókn á samfélagsmiðlaefni Cranmer. Fundust þá önnur myndbönd af henni og umræddu barni.

Önnur kona, móðir drengsins sem um ræðir, sagði lögreglu að hún hefði byrjað að taka eftir breytingum á honum eftir að Cranmer byrjaði að passa hann. Meðal annars vildi hann ekki lengur fara í bað.

Skömmu síðar var Cranmer handtekin og ákærð. Í ákæruskjalinu segir að hún sé sökuð um misnotkun barns, að framleiða og hafa í sinni vörslu kynferðislegt efni af börnum.

Saklaust atvik

Lögmaður Cranmer, Marissa Koerner, segir hins vegar að málið sé saklaust. Myndbandið áðurnefnda sýni ekki glæpsamlega hegðun heldur saklaust atvik.

„Allir sem hafa haft lítil börn í sinni umsjá vita að þau bera litla virðingu fyrir persónulegu rými eða einkalífi manns,“ segir Koerner. „Lítil börn fara reglulega með foreldrum sínum eða forsjáraðilum inn á baðherbergi, snerta hluti, spyrja spurninga, eru forvitin og skilja ekki venjuleg samfélagsleg mörk.“

Segir hún að allt of mikið hafi verið gert úr málinu.

„Börn sýna oft af sér fyndna og skrýtna hegðun sem fullorðnir taka upp af því að þau eru minnisstæð og fyndin,“ segir Koerner.