Auglýsing Áfram Ísland í Morgunblaðinu í dag hefur vakið mikla athygli og hörð viðbrögð. Í auglýsingunni er birt bréfið þar sem Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu sumarið 2009 undir yfirskriftinni „Við erum að fara að kjósa um aðild að ESB“, þá er einnig minnt á opinn fund samtakanna á Akranesi í dag.
Tilfinningar sölumannsins í Tvíhöfða
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst geta kjósendur kosið já eða nei við spurningunni hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, hafnar því að verið sé að kjósa um aðild og vitnar í Tvíhöfða.
„Það er til Tvíhöfðaskets í röðinni "hegðun - atferli - framkoma" þar sem viðskiptavinur er að kaupa sér buxur. Sölumaðurinn lætur hann máta ljótar buxur sem passa alls ekki á hann en hann endar á því að kaupa þær til að særa ekki tilfinningar sölumannsins. Talsmenn "neisins" eru nú að reyna að halda því fram að aðildarferlið sé svona. Mátuð vara sé keypt vara. "Atkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um aðild!",“ segir Pawel í færslu á Facebook.
„Telja nei-sinnar þá íslenska að þjóðin muni segja "já" við hvaða samningi sem er í síðari atkvæðagreiðslunni? Til að særa ekki viðkvæmar tilfinningar Evrópusambandsins? Nei, það er ekki þannig. Atkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um aðildarviðræður. Það er hvorki ómerkilegt né léttvægt, annars væri ekki verið að setja þetta í hendur allra Íslendinga. En það er ekki kosið um aðild. Að halda öðru fram er einfaldlega rangt.“
Mega ekki kynna þetta sem kosningar um aðild
Pawel segir að hvort sem litið sé á mögulegar viðræður sem framhald á síðustu viðræðum, sem nýjar viðræður þá sé það ekkert það sama og aðild.
„Feneyjarnefndin lagði á sig að ítreka við okkur að stjórnvöld mættu ALLS EKKI kynna þetta sem kosningu um aðild. Einfaldlega vegna þess aðild er ekki á borðinu á þessari stundu. Íslensk stjórnvöld geta ekki einhliða ákveðið að ganga í ESB. Eina sem þau geta gert er að óska eftir aðildarviðræðum. Um það er kosið.“
Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingmaður og borgarfulltrúi, vitnar í bréfið frá 2009 í færslu á Facebook og setur spurningamerki við að Landskjörstjórn segi að þegar kosið verður í ágúst þá þurfi ekki að taka afstöðu til þess hvort viðræðurnar séu nýjar eða framhald. „Hvers vegna er efni Landskjörstjórnar með þessum hætti?,“ spyr Vigdís. „Að fólk þurfi ekki að taka afstöðu til ESB í þjóðaratkvæðagreiðslunni...!!!“
„Af hverju er verið að þræta um jafnaugljóst atriði?“
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, er á sömu línu og Pawel.
„Ég skil ekki af hverju er verið að rembast við að halda því fram að það sé verið að kjósa um aðild núna í ágúst. Eina ástæðan fyrir því er að ef PR-könnunin sýnir að það virki til þess að fá fólk til þess að segja nei við viðræðum,“ segir hann. „Það þýðir að þetta blessaða fólk þarna er tilbúið til þess að ljúga að fólki til þess að fá sínu framgengt.“
Einar Steingrímsson stærðfræðingur segir auglýsinguna fela í sér lygar: „Skammast þetta fólk sín ekkert fyrir að ljúga blákalt?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, segir auglýsinguna vera rétta:
„Þetta er rétt, og þú hefur rangt fyrir þér. Við erum að endurnýja aðildarumsókn frá 2009 með því að kjósa já. Af hverju er verið að þræta um jafnaugljóst atriði?“
Einar svarar honum fullum hálsi: „Ertu ólæs? Að “endurnýja aðildarumsókn” er ekki að “kjósa um aðild”.“