Allar björgunarsveitir í Eyjafirði hafa verið kallaðar út vegna björgunaraðgerðar í Glerárdal, suðaustur af Akureyri. Sjúkraflutningamenn hafa einnig verið kallaðir út.
RÚV greinir frá.
Útkallið er sagt vera á háum forgangi, F2. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út á hæsta forgangi til að sinna sjúkraflugi og er þyrlan á leiðinni í Glerárdal.
Útkallið er vegna slasaðs manns sem er utandyra. Verið er að vinna að því að koma manninum til hjálpar.
Uppfært: Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á Sjúkrahúsið á Akureyri. Ekki er vitað um líðan hans.