Tilkynnt hafa verið um 60 innbrot í Reykjavík það sem af er júlímánuði, sem er svipaður fjöldi og allan júlí. Mikið hefur verið um innbrot í veitingastaði í miðbænum en einnig í heimahús.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í viðtali við Rás 2 (sjá vef RÚV) að þessi fjölgun sé ekki einsdæmi. Lögregla hafi áður orðið vör við toppa af þessu tagi. Grunaðir innbrotsþjófar séu fólk sem stríðir við fíkn en ekki sé um skipulagða brotastarfsemi að ræða.
„Langflest þessara brota hafa átt sér stað, ef við eigum að draga einhverja línu, vestan við Snorrabraut, á miðbæjarsvæðinu. Það er svæðið sem þetta hefur verið að gerast á og skiptingin á milli heimila og fyrirtækja, ég er ekki alveg með það í kollinum en ég gæti trúað að það væru aðeins fleiri fyrirtæki en heimili líka,“ segir Ásmundur.
Lögregla telur að sömu einstaklingarnir tengist innbrotum í heimahús. Einn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær vegna tengsla við töluverðan fjölda þessara innbrota.
Sjá nánar á RÚV.