Þórunn Reynisdóttir, forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýnar, segir að landsmenn hafi bókað margar skyndiferðir í sólina um liðna helgi.
Óhætt er að segja að landsmenn hafi undanfarna daga upplifað það besta og versta sem íslenskt sumarveður býður upp á. Á austurhelmingi landsins hefur verið bongóblíða og hlýtt í veðri á meðan íbúar á vesturhelmingnum hafa upplifað rok og rigningu eins og hún gerist best.
Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Þórunni og segir hún að margir vilji komast í sólina strax í þessari viku.
„Við höfum ekki undan að selja í sólina. Þetta er bara eins og loðnuvertíð,“ hefur blaðið eftir henni og hefur flugferðum verið bætt við vegna mikillar eftirspurnar. „Það er bara langt síðan við höfum séð svona viðbrögð.“
Í dag er spáð 24 stiga hita á Egilsstöðum en á sama tíma verða 11 gráður í Reykjavík. Á föstudag er gert ráð fyrir sól og 22 stiga hita á Egilsstöðum og 23 stiga hita og sól á Akureyri. Á sama tíma verða 12 gráður í Reykjavík og alskýjað.
Svona verður þetta áfram inn í næstu viku. Sjálfvirkt spákerfi Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir 25 stiga hita á Egilsstöðum á mánudag en 13 gráðum og lítils háttar rigningu í Reykjavík.