Fréttir

Stefán segir það stórhættulegt fordæmi að reka úkraínska menn úr landi sem ekki hafa lokið herskyldu

Mynd
Stefán rifjar upp mál Gervasoni og Guðrúnar Helgadóttur.

Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins, segir það stórhættulegt fordæmi og mannréttindabrot ef íslensk stjórnvöld myndu vísa úkraínskum mönnum sem ekki hafa lokið herskyldu úr landi. Vísar hann í mál frá upphafi níunda áratugarins.

„Einhver áhugaverðasta uppákoma stjórnmálasögu síðustu hálfrar aldar var þegar Guðrún Helgadóttir gerði sig líklega til að fella ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens vegna áforma um að vísa Frakkanum Gervasoni úr landi. Hann var talinn eiga yfir höfði sér refsingu í heimalandinu fyrir að neita að gegna herþjónustu,“ segir Stefán í færslu á samfélagsmiðlum.

Eftir að utanríkisþjónustan hafi nánast verið lögð á hliðina hafi loks tekist að finna lausn í máli Frakkans.

Segir hann að íslensk stjórnvöld hafi almennt ekki veitt mönnum hæli fyrir það eitt að flýja herskyldu. En til dæmis hefðu þau aldrei vísað Bandaríkjamönnum sem flúðu herskyldu á tímum Víetnam stríðsins úr landi.

„Það væri því stórkostlegt frávik frá fyrri stefnu okkar ef ríkisstjórnin gerir alvöru úr vangaveltum um að reka úr landi menn sem úkraínski herinn telur sig hafa lögsögu yfir. Það væri að mínu mati bæði hreint mannréttindabrot og stórhættulegt fordæmi,“ segir Stefán og vísar í fréttir af því að úkraínsk stjörnvöld hafi falast eftir þessu. „Góð vinnuregla í lífinu: ef þú ert í vafa - gerðu þá eins og Guðrún Helgadóttir!“ segir Stefán.