Fréttir

Segir Íslendinga sjálfa vera verstu ferðamennina á Íslandi – „Þeir heimta sérmeðferð“

Mynd
Eru Íslendingar dónar eða pirraðir á ferðamannaálaginu? DV/Hanna

Íslendingar gera mikið í því að kvarta yfir erlendum ferðamönnum, oft frá ákveðnum löndum eins og Kínverjum eða Bandaríkjamönnum. En Íslendingur sem vann á stórri gestastofu í þrjú sumur segir Íslendinga klárlega verstu ferðamennina.

Vilji sérmeðferð

„Ég hitti mörg þúsund manns hvaðanæva úr heiminum... og undantekningarlaust voru Íslendingar ókurteisustu, leiðinlegustu og frekustu ferðamennirnir,“ segir hann í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.

Segist viðkomandi hafa aðeins tvisvar eða þrisvar lent í virkilega leiðinlegum erlendum ferðamönnum. Upp til hópa hafi þeir verið virkilega indælir og vinalegir og borið virðingu fyrir honum sem og Íslandi.

Hann hafi hins vegar fengið að kynnast nóg af leiðinlegum Íslendingum. Þó að Íslendingar hafi verið mjög lítil prósenta af heildarfjöldanum sem kom á gestastofuna, í kringum 3 prósent, hafi þeir verið skapað langmestan, í kringum 75 prósent, af öllum dónaskap, frekju og óvirðingu.

„Þeir heimta sérmeðferð. Þeir heimta að fá að fara út af stígum því þeir eru Íslendingar,“ segir hann. „Einu sinni sögðum við íslenskum ferðamönnum að þau gætu ekki tjaldað því tjaldsvæðið væri fullt og ekkert vatn til - þau sögðu „en við erum Íslendingar!“, tjölduðu og borguðu ekki neitt. Eina fólkið sem hefur hreytt í mig eru Íslendingar. Þeir einu sem hafa neitað mínum fyrirmælum sem einkennisklæddur landvörður eru Íslendingar.“

Segir hann þetta mjög hvimleitt. Enginn fái sérstaka meðferð vegna þjóðerni síns.

„Allir verða að fylgja reglunum og koma fram við fólk af virðingu. Enginn fær sérmeðferð. Þessar reglur eru settar af góðri ástæðu - íslensk náttúra er gríðarlega viðkvæm og henni er alveg sama hvort fæturnir sem eru að traðka á henni séu íslenskir eða kínverskir,“ segir hann.

Alltaf verið ókurteisir og frekir

Sumir taka undir með þessu og nefna að Íslendingar hafi lengi verið frekir.

„Íslendingar hafa alltaf verið svona, fyrir tuttugu árum þegar umferðin var mun minni, og núna. Íslendingar eru bara upp til hópa ókurteist fólk sem kann ekki mannasiði og það sést best þegar á að „þjóna“ þeim,“ segir einn í athugasemdum.

„Elska mína þjóð, en við erum oft ves. Fólk í bransanum setur Íslendinga í efstu 5 erfiðustu þjóðirnar ef þú spyrð undir rós. Ekki vegna einhverrar rómantískrar sálarmæðu vegna ferðaþjónustu - bara venjuleg tilætlunarsemi og sjálfhverfa,“ segir annar.

Pirraðir á ferðamannaálaginu

Aðrir verja háttsemi Íslendinga og segja að ástandið hafi gerbreyst á undanförnum árum. Ferðamenn séu orðnir allt of margir og álagið sem þeim fylgir.

„Það er ódýrt að kalla Íslendinga freka, en aðeins erfiðara að horfast í augu við af hverju þeir eru orðnir svona pirraðir. Þeir eru einfaldlega dauðþreyttir á því að vera meðhöndlaðir eins og túristar í eigin landi. Bílastæði, stígar, baðlaugar, tjaldsvæði og allt orðið dýrara og meira sniðið að ferðamönnum en heimamönnum. Þegar allt snýst um að kreista sem mest út úr hverri heimsókn (líka í „þjóð“garðinum) er ekkert skrýtið að pirringurinn skili sér. Það afsakar ekki dónaskap, en það kemur heldur engum á óvart,“ segir einn.

„Ég held að mjög margir Íslendingar séu ekki tilfinningalega búnir að átta sig á því að alls konar hlutir sem gengu upp árið 1998 þegar fjöldi fóta á hverjum stað, hverju tjaldstæði, hverri náttúruperlu var bara brotabrot af því sem það er núna ganga bara ekki upp lengur,“ segir annar.