Verkalýðsleiðtoginn Sólveig Anna Jónsdóttir skýtur föstum skotum á þá sem vilja hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið og bendir á að enn sé í gildi viðskiptasamningur við Ísrael.
„Vitið þið hver er helsti viðskiptaaðili Ísrael? Það er Evrópusambandið,“ segir Sólveig Anna í beinskeyttri færslu á Facebook.
Sólveig Anna er einn stofnenda Áfram Ísland samtakanna og hefur stigið skýrt fram með sína afstöðu. Nýverið svaraði hún þeim sem hafa sett spurningamerki við veru hennar í samtökum með fólki sem aðhyllist önnur pólitísk sjónarmið öllu jafna.
„Ég hefði haldið að öllum væri það ljóst að manneskja getur verið sammála annarri um eitt og ósammála um fjölmargt annað. Sem dæmi getur ein manneskja verið andvíg aðild Íslands að ESB vegna stéttapólitískra ástæðna, önnur vegna fullveldis-ástæðna, sú þriðja vegna andúðar á síonosta-meðvirkni/stuðningi sambandsins, sú fjórða vegna meðferðar á flóttafólki og hælisleitendum,“ sagði hún.
„Ég er ekki viðbjóður, sorgleg drusla, Júdas, kvislingur, hækja auðvaldsins og klappstýra, blóðsuga, huglaus eða mútuþegi, svo örfá dæmi séu nefnd af því sem ég hef verið kölluð undanfarið. Ekki frekar en að allt já-fólk eru auðvirðilegir síonista-elskendur og stuðningsmenn þjóðarmorðs og glæpa gegn mannkyni.“
Bætti hún þá við að hún færi ekki fram á að Hjálmtýr Heiðdal segi af sér sem formaður Félagsins Ísland-Palestína. Sjálfur hefur Hjálmtýr stigið fram með afstöðu sína:
„Ég kýs já 29. ágúst vegna þess að ég vil ekki loka mögueikum minna afkomenda á betra þjóðfélagi sem aðild að ESB gæti fært þeim,“ segir hann í færslu á Facebook.
„Varðandi ESB og stefnu sambandsins og einstakra aðildarríkja gagnvart Ísrael þá er ég sammála Sólveigu Önnu um hve glæpsamleg sú stefna er. Ég tel þó að aðild að ESB sé mögulega betri kostur til þess að hafa áhrif á þá stefnu heldur en að standa fyrir utan.“
Ógeð í pakkanum
Sólveig Anna segir að þrátt fyrir glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð sé viðskiptasamningur ESB við Ísrael enn í gildi:
„ Að þrátt fyrir að framkvæmdastjórn ESB hafi fyrir ári síðan komist að þeirri niðurstöðu að Ísrael hafi "líklega" gerst brotlegt við mannréttindaskilmála samningsins er ekki hægt að segja honum upp vegna andstöðu m.a. Þýskalands sem ræður innan ESB öllu sem það vill ráða?,“ segir hún.
„Ef þið vitið þetta - hvernig getið þið látið eins og það sé eftirsóknarvert fyrir Ísland að ganga til liðs við ESB? Ef að þið vitið að þetta ógeð er í pakkanum afhverju langar ykkur samt að fá að kíkja í hann?“
En að vera áfram í EES utan ESB styður Palestínumenn hvernig?
Margir hafa svarað Sólveigu Önnu, þá hefur EFTA sem Ísland er aðili að verið með fríverslunarsamning við Ísrael frá því á tíunda áratugnum. Þorvaldur nokkur segir:
„Ísland er nú þegar með fríverslunarsamning við Ísrael en ekki atkvæðisrétt um það. Innganga í ESB myndi engu breyta um það nema atkvæðisréttinum.“
Þá stígur Mörður Árnason, fyrrverandi þingmaður, fram og segir:
„Í ESB mundi Ísland geta beitt sér fyrir stuðningi við Palestínu. En að vera áfram í EES utan ESB styður Palestínumenn hvernig?“