Fréttir

Magnea lýsir raunum aldraðrar móður sinnar - „Mér svíður það að við sem rík þjóð gerum ekki betur“

Mynd

Móðir Magneu Gunnarsdóttur er harðdugleg kona en fyrir rétt rúmu hálfu ári var fótunum kippt undan henni. Ástandið fór fljótt versnandi en til allrar hamingju er til aðgerð sem getur ráðið bót á ástandinu. Landspítalinn er þó með kvóta fyrir aðgerðir af þessu tagi. Móðir Magneu náði ekki að vera meðal þeirra hundrað sem fá niðurgreidda aðgerð á árinu og þurfti því að reiða fram 1,5 milljónir úr eigin vasa til að losna við kvalirnar.

Magnea lýsir þrautagöngunni í grein sem birtist hjá Vísi í dag en þar lýsir hún því hvernig móðir hennar fór skyndilega í desember að glíma við mikla og sára verki í baki sem fóru hratt versnandi. „Forlögin kipptu undan henni fótunum,“ skrifar Magnea og bætir við að fyrr í sumar hafi verkirnir einfaldlega verið orðnir óbærilegir.

Vísir ræddi við Magneu í móður hennar, Huldu Gunnlaugsdóttur, í gær en þar lýsir Hulda því að hafa verið komin í þá stöðu að bryðja verkjatöflur eins og sælgæti til að halda sér gangandi. Magnea skrifar í grein sinni að móðir hennar hafi alla ævi staðið sína plikt, gefið af sér til samfélagsins og borgað sína skatta þar sem hún sleit sér út sem grunnskólakennari. Þrátt fyrir að Ísland sé meðal ríkustu þjóða heims og þrátt fyrir að við höfum lengi státað af einu öflugasta heilbrigðiskerfi sem finna mátti sé staðan önnur í dag.

Aðgerðir á borð við þá sem Hulda þurfti að gangast undir eru framkvæmdar annars vegar á Landspítalanum og hins vegar á einkastofum. Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða þó aðeins 100 aðgerðir á árinu. Þessi kvóti kláraðist strax í mars þrátt fyrir langan biðlista.

Magnea bendir á að þessir biðlistar séu ekki bara nöfn og tölur á blaði heldur fólk sem glímir við þjáningar og er hætt við varanlegum heilsuskaða ef ekki er gripið inn í nógu snemma. Þeir heppnu geta leitað til einkaaðila og borga fyrir það úr eigin vasa. Hulda er ein þeirra heppnu.

„Hún átti nefnilega smá pening og gat borgað sig í aðgerð. Það var ekki lítil fjárhæð, skal ég segja ykkur, og alls ekki á færi hvers manns að reiða fram. En annað kom ekki til greina því við ástandið var engan veginn unað. Sérfræðilæknirinn gerði á henni aðgerð sem var dagsett um leið og ákvörðun var tekin – með óbragð í munni þó, þar sem hann veit að ósanngjarnt skipulag í „Excelskjali“ varð til þess að sjúklingur hans þurfti að reiða fram rúmlega 1,5 milljón til þess að laga ástand sem ekki var með nokkru móti unað við.“

Magnea segir það svíða að ríka þjóðin Ísland geri ekki betur og vonast hún til þess að opna augu valdhafa á Íslandi fyrir stöðunni með grein sinni.

„Mér svíður það að við sem rík þjóð gerum ekki betur. Og ég finn virkilega til með móður minni og öðrum sem að ósekju og óþörfu líða miklar þrautir. Ég vona að þessi greinaskrif mín opni augu þeirra sem halda um stjórnartaumana. Ég veit fyrir víst að móðir mín er ekki ein í þessari stöðu. Á bak við ákvarðanir sem teknar eru er fólk sem vafalaust vill samfélaginu hið besta. Þess vegna ákváðum við að láta í okkur heyra í þeirri von að einhver vakni og vinni sem hraðast í því að kippa hlutunum í lag.“

Hulda lýsti því í samtali við Vísi að hún hafi vaknað eftir aðgerðina verkjalaus,