Breska hryðjuverkalögreglan skoðar nú hvort öfgavinstriskoðanir séu að baki morðinu á stjórnmálakonunni Ann Widdecombe. Einnig er verið að skoða hvort óþol á skoðunum Widdecombe, þar á meðal í garð hinseginfólks, hafi spilað þar hlutverk. Þetta kemur fram í umfjöllun Guardian um málið.
Widdecombe fannst látin á heimili sínu á fimmtudag, hún fannst þó ekki fyrr en degi síðar. Hún var 78 ára og var ráðherra Íhaldsflokksins á tíunda áratugnum. Hún gekk síðar til liðs við Reform UK og var þar mikill bandamaður Nigel Farage. Hefur hann verið sakaður um að nýta sér morðið í pólitískum tilgangi.
Sjá frétt: Hægriöfgamaðurinn Farage sakaður um að nýta sér dauða flokkssystur sinnar
28 ára gamall maður, sem lögreglan hefur lýst sem hvítum Breta, er í haldi grunaður um morðið. Var hann fyrst handtekinn á laugardag fyrir morð og svo aftur á mánudaginn fyrir brot gegn hryðjuverkalögum.
Hryðjuverkalögreglan tók yfir rannsóknina í kjölfar húsleitar á heimili mannsins, komu einnig í ljós upplýsingar um að stjórnmál hafi staðið að baki morðinu. Einnig er verið að skoða bakgrunn mannsins með tilliti til geðrænna vandamála. Heimildarmenn Guardian taka fram að rannsóknin sé ekki langt komin og að atriðin sem eru til skoðunar gætu komið til með að breytast.