Fréttir

Kynferðisbrot á nýlegum útihátíðum – „Þetta er einkennismerki þess að ofbeldi er látið viðgangast í samfélaginu“

Mynd
Drífa Snædal, talskona Stígamóta. Mynd: Ernir.

Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir orðræðu um kynferðisbrot á útihátíðum um síðustu helgi bera með sér að litið sé á kynferðisbrot sem fórnarkostnað hátíðarhaldsins. 

„Þetta er einkennismerki þess að ofbeldi er látið viðgangast í samfélaginu,“ segir Drífa Snædal í viðtali við Heimildina

Um síðustu helgi var tilkynnt um eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Norðurlandi og þrjú brot á Kótelettunni á Selfossi. Framkvæmdastjóri landsmótsins sagði í samtali við mbl.is að þrátt fyrir ofbeldisatvik hafi mótið gengið vel að öðru leyti. Framkvæmdastjóri Kótelettunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að hátíðin hafi farið fram úr björtustu vonum og ótrúlega mikil gleði hafi verið í fólki. Hann sagði í viðtali við RÚV um tilkynningar um þrjú kynferðisbrot á hátíðinni: „Ef allt reynist rétt þá eru það að sjálfsögðu mikil vonbrigði ef að slíkt hefur gerst.“

Drífa segir orðræðuna sem skapast í kringum útihátíðir bera þess merki að litið sé svo á að kynferðisbrot séu óhjákvæmilegur fylgifiskur þeirra. Þannig eigi það auðvitað ekki að vera. Einnig séu uppi þær ranghumyndir að kynferðisbort hafi verið vandamál á útihátíðum áður fyrr en svo sé ekki lengur. Þetta sé hins vegar ekki rétt. 

Sjá nánar á vef Heimildarinnar