Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) skora á borgaryfirvöld að bregðast við innbrotafaraldrinum sem geisað hefur í miðborginni, og hvetja til í samvinnu við lögreglu, íbúa og samtökin. Í ályktun íbúasamtakanna segir:
„Tugir tilkynninga um innbrot hafa borist til lögreglu frá mánaðamótum júní/júlí í ár, eða 61 talsins. Alls eru innbrotin 45 á varðsvæði lögreglustöðvar 1 sem sinnir verkefnum í Miðborg, Hlíðum, Vesturbæ, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi, þar af 20 í miðborginni.
Um er að ræða innbrot jafnt á heimili sem og fyrirtæki, og virðist sem smærri fyrirtæki séu frekar valin. Innbrotsþjófar stela bæði fjármunum og hlutum, og valda jafnframt skemmdum, ýmist á hurðum, gluggum, húsgögnum og fleira, eða öllu framantöldu.
Mikilvægt er að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, ÍMR, íbúa og fyrirtækjaeigendur. Virkja þarf nágrannavörslu, tilkynna öll mál til lögreglu sem þarf að bregðast við með vettvangsheimsókn, og brýna fyrir íbúum og fyrirtækjaeigendum að bæta öryggi eins og kostur er við heimili sín og fyrirtæki.“
Kalla eftir aðgerðum vegna innbrotafaraldursins
Mynd
Mynd: Reykjavíkurborg
Beinni vakt lokið