Hvítum Ford F-350 pallbíl var stolið fyrir utan heimili í Mosfellsdal, aðfaranótt þriðjudagsins 14. júlí.
Bíllinn er með einkanúmerið DIVER.
Óstaðfestar fregnir herma að sést hafi til bílsins í Borgarnesi þar sem hann var notaður við innbrot.
Eigandi bílsins segir í samtali við DV að málið sé í rannsókn lögreglu og biður hvern þann sem hefur upplýsingar um það að hafa samband við lögreglu.
Það má gera með því að hringja í síma 444 1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is
Uppfært: Bíllinn er fundinn.