Fjölskylda frá Georgíufylki í Bandaríkjunum er í sárum eftir að tveggja ára drengur var skotinn til bana í ferðalagi í Flórída. Verið var að halda upp á afmæli drengsins.
Greint er frá þessu á GoFundMe síðu þar sem safnað er fyrir fjölskylduna.
Hið hræðilega slys átti sér stað síðdegis á sunnudag, 12. júlí, í bænum Kissimmee, sunnan við borgina Orlando þegar hinn tveggja ára Brayden Tennyson lést. En fjölskyldan, sem er frá bænum Louisville í Georgíu, hafði leigt Airbnb íbúð í bænum og var nýbúin að koma sér fyrir.
Eins og segir í tilkynningu lögreglunnar í Osceola sýslu þá var það fjögurra ára frændi Brayden sem skaut hann til bana. Brayden hafði verið einsamall úti í bíl fjölskyldunnar þegar frændinn kom þangað. Voru piltarnir þá einir í bílnum.
Skilin eftir í sorg
Frændinn fann þá hlaðna skammbyssu, sem var ekki í hulstri og ekki með neinni læsingu á. Það næsta sem gerðist var að hann hleypti af með áðurnefndum afleiðingum. Fjölskyldan heyrði skothvellinn og fann Brayden í bílnum. Farið var með hann á sjúkrahús en hann var þar úrskurðaður látinn.
„Dagurinn hefði átt að vera fylltur afmæliskertum, hlátri, faðmlögum og góðum minningum,“ segir í færslunni með söfnuninni. „En þess í stað eru þau sem elskuðu Brayden skilin eftir í sorg vegna þess að líf hins litla drengs var slökkt allt of snemma.“
Ekki tölvuleikur
Lögreglurannsókn er hafin vegna málsins en ekki liggur fyrir hvort eða hver verður ákærður í málinu.
„Hún lá þarna bara,“ segir Christopher Blackmon lögreglustjóri. „Það var svo auðvelt að ná í hana. Hann tók í gikkinn og það er ekki hægt að taka það til baka. Þetta er ekki tölvuleikur. Þú getur ekki endurræst leikinn og byrjað upp á nýtt. Þegar tekið er í gikkinn þá mun kúlan fara eitthvað. Þessi kúla hafnaði í tveggja ára dreng og drap hann.“
Benti hann á að mjög auðvelt væri að setja lása á byssur. Lögreglan í Osceola gæfi slíka lása til byssueigenda.