Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar vakti mikla athygli í vikunni fyrir að mæta einn þingmanna í opnun á nýju menningarhúsi gyðinga sem nýverið var opnað í gamla Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu í Reykjavik.
Viðvera hans hlaut misjafnar undirtektir á samfélagsmiðlum og var Jón meðal annars í viðtali í fréttum Sýnar í gærkvöldi vegna málsins.
Í færslu sinni á Facebook segist Jón gera það sem samviska hans bjóði og hann telji rettm aðrir geti haft skoðun á því.
„Þann fyrsta mars þáði ég Ramadan kvöldverðarboð Félag Horizon menningarfélag múslíma á Íslandi í tilefni loka Ramadan föstunnar. Margir sem hatast útí það ágæta fólk.
Seinna í mánuðinum fór ég sem fulltrúi Alþingis á ráðstefnu UN Women í New York. Margir sem hata konur af öllu sínu illa hjarta og ofsækja.
Þrettánda júní tók ég þátt í gleðigöngunni í Nuuk og fundaði með Sipineq+ samtökum hinsegin fólks í Grænlandi. Margir hatast við þau.
Ég hef margoft lýst yfir stuðningi mínum við sjálfsákvörðunarrétt Grænlensku þjóðarinnar og andmælt yfirgangi og ógnunum Bandarískra stjórnvalda. En ég elska samt Bandaríkin og það yndislega fólk sem þar býr. En margir hatast útí þau.
Ég er ekki múslimi. Ég er heldur ekki kona. Ég er ekki Grænlendingur eða Inúíti. Ég er ekki hommi. Ég er ekki Gyðingur og ekki Bandaríkjamaður. Ég er bara manneskja eins og allt þetta fólk. Ég mun halda áfram, eins og ég hef alltaf reynt, að gera það sem samviska mín býður mér og ég tel rétt. Aðrir geta haft allskonar skoðanir á því og mega halda og segja hvað sem þeim sýnist.
Ég veit ekki um neinn sem hefur tekið skynsamlega ákvörðun í ótta. Reiði getur gefið fólki ágætis orkuskot en fólk þarf að passa sig að ánetjast henni ekki. Hatur er eitur sem skaðar mest mann sjálfan. Ég hata engan
One love.“