Fréttir

Adolf Ingi ósáttur og sendir Stefáni bréf: „Finnst þér þetta virkilega forsvaranlegt?“

Mynd

Adolf Ingi Erlingsson, leiðsögumaður og fyrrverandi íþróttafréttamaður til margra ára, hefur sent Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra fyrirspurn vegna auglýsinga frá Smáríkinu sem sýndar hafa verið á RÚV.

Adolf Ingi greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi og er óhætt að segja að færsla hans hafi vakið athygli.

Fyrirspurn Adolfs Inga var eftirfarandi:

Sæll, Stefán.

Ég get ekki orða bundist þegar ég horfi uppá minn gamla vinnustað sjónvarpa auglýsingum frá Smáríkinu sem var í vor dæmt fyrir ólöglega sölu á áfengi. Í mínum augum er um tvöfalt lögbrot að ræða. Annars vegar eru áfengisauglýsingar bannaðar og þar eð Smáríkið selur ekkert annað en áfengi er augljóst hvað er verið að auglýsa. Hins vegar var starfsemi fyrirtækisins dæmd ólögleg í héraðsdómi í vor.

Finnst þér, sem útvarpsstjóri og fyrrverandi lögreglustjóri, þetta virkilega forsvaranlegt?

Kv.

Adolf Ingi Erlingsson

Í athugasemdum við færslu Adolfs hrósa honum margir fyrir frumkvæðið og kalla eftir svörum frá RÚV vegna málsins. Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, leggur til dæmis orð í belg og segir:

„Takk fyrir að vera í hópi þeirra sem veita veita stjórnvöldum, stjórnsýslu og stofnunum aðhald og fyrir að sýna lýðheilsu, samfélagslegri ábyrgð og vernd barna og ungmenna skilning og stuðning!“

Þess má geta að auglýsingar Smáríkisins komu til umræðu á stjórnarfundi RÚV sem haldinn var í lok maí síðastliðnum, en í fundargerð sem finna má á vef RÚV kemur fram að útvarpsstjóri hafi gert grein fyrir nýlegri niðurstöðu Fjölmiðlanefndar vegna kvörtunar vegna ætlaðs viðskiptaboðs fyrir áfengi.

„Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum kvörtuðu yfir auglýsingum frá Smáríkinu í sjónvarpi hjá RÚV, en Smáríkið rekur netverslun með áfengi. Niðurstaða Fjölmiðlanefndar var að ekki væri um að ræða viðskiptaboð fyrir áfengi, áfengir vörutegundir eða vörumerki, heldur fyrir verslunina Smáríkið og þá þjónustu sem hún veitir. Ákvað Fjölmiðlanefnd því að aðhafast ekki frekar vegna kvörtunarinnar.“