Vísundur stangaði og kastaði gömlum manni nokkra metra upp í loftið í þjóðgarðinum Yellowstone í Bandaríkjunum. Myndband náðist af atvikinu.
Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.
Það var hinn 65 ára gamli Carl Isom-McDaniel sem varð fyrir óhappinu síðastliðinn föstudag. Gamli maðurinn hlaut talsverða áverka og er mjög kvalinn eins og segir í fréttinni.
Eins og sést í myndbandinu var Carl hlaupinn upp af 900 kílóa vísundstarfi sem setti undir sig hausinn, stangaði manninn og fleygði honum hátt upp í loftið. Sést greinilega hversu mikill styrkur skepnunnar er og hversu lítið mál það er fyrir hana að lyfta einum gömlum manni hátt upp í loft.
„Vísundar virðast oft vera rólegir en þessar stóru skepnur hafa slasað fleiri í Yellowstone garðinum en nokkur önnur dýr,“ segir á vefsíðu þjóðgarðsins í Wyoming fylki. „Þeir geta hlaupið þrisvar sinnum hraðar en menn sem þýðir að það er nauðsynlegt að gefa þeim mikið rými.“
Er fólki ráðlagt en að fara ekki nær þeim en sem nemur 23 metrum. Aldrei eigi að nálgast dýrin eða taka af þeim myndir.
En það var einmitt það sem hinn ólánsami Carl var að gera ásamt barnabarni sínu. Reiddist vísundurinn og réðist á Carl sem endaði á spítala. Slasaðist gamli maðurinn aðallega á fótlegg þar sem hann lenti harkalega.