Fréttir

Vaknaði í miðri liðskiptaaðgerð vegna mistaka við svæfingu

Mynd

Kona sem hlaut sjaldgæfan fylgikvilla eftir liðskipti á hægri mjöðm fær mun hærra mat á varanlegum miska og örorku en Sjúkratryggingar Íslands höfðu áður ákveðið. Þetta var niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála sem var birt á dögunum.

Konan hafði áður farið í liðskipti á vinstri mjöðm sem gengu ágætlega fyrir sig. Öðru gilti um seinni aðgerðina þar sem þrautagangan virtist engan endi ætla að taka. Eftir aðgerðina kom í ljós að hluti liðarins hafði sigið ofan í lærlegginn sem olli verkjum og óstöðugleika. Því þurfti að senda konuna í frekari aðgerðir. Í einni þeirra tókst ekki að fjarlægja gerviliðinn þar sem hann hafði gróið fastur í beinið og þurfti því síðar að kljúfa lærlegginn til að ná gamla liðnum út og setja nýjan gervilið á sinn stað. Stálvír sem var notaður til að halda lærleggnum saman brotnaði og stakkst í lærið svo að fjarlægja þurfti hann með enn annarri aðgerðinni. Loks var mjöðmin svo óstöðug að hún fór úr lið við einföld heimilisstörf.

Eftir sat konan með mikla verki, kraftleysi, helti og skerta göngugetu. Eitt alvarlegasta atvikið átti sér stað í miðri aðgerð eftir að mistök áttu sér stað við svæfingu, en þá vaknaði konan upp í aðgerðinni.

Konan situr nú uppi með áfallastreituröskun, þunglyndi, kvíða, martraðir, svefntruflanir og vonleysi. Hún er í þannig stöðu að starf hennar býður ekki upp á það að vinna í skertu hlutfalli og kom það henni á óvart þegar Sjúkratryggingar Íslands mátu varanlegan miska hennar aðeins 15 prósent og varanlega örorku 7 prósent. Að mati konunnar komst þetta ekki nærri því að endurspegla raunverulegt tjón. Hún væri nú bundin við skrifborð í starfi sínu og gæti ekki sinnt þeim hlutum starfsins sem krefjast hreyfingar. Hún hafi því þurft að nota orlof til að stytta vinnudaga og telur líklegt að hún þurfi að hætta fyrr en ella á vinnumarkaði.

Úrskurðarnefndin tók að verulegu leyti undir með konunni. Líkamlegur miski vegna mjaðmar næmi 10 stigum umfram þann miska sem fylgir vel heppnuðum gervilið. Eins hefðu andlegar afleiðingar verið mun verri en Sjúkratryggingar höfðu viðurkennt. Niðurstaðan var því að miski konunnar var hækkaður úr 15 í 25 stig og varanleg örorka úr 7 prósentum upp í 15 prósent.