Fréttir

Ung reykvísk kona í vanda eftir að hafa tekið á móti FedEx hraðsendingu frá Dómíníska lýðveldinu

Mynd
Mynd: DV/Maggi gnúsari

Reykvísk kona, fædd árið 2005, hefur verið ákærð fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrot. Í ákæru Héraðssaksóknara er hún sögð hafa fimmtudaginn 27. mars árið 2025, í félagi við karlmann, reynt að taka á móti og hafa í vörslu sinni tæplega 700 g af sterku kókaíni. 

Fíkniefnin voru falin í hliðum pappakassa sem sendur var með FedEx hraðsendingu frá Dóminíska lýðveldinu, með viðkomu í Bandaríkjunum, þar sem sendingin var tekin til skoðunar af yfirvöldum og efnin fjarlægð.

Sendingin var send áfram til Íslands og barst hingað til lands 27. mars 2025, en ákærða tók á móti sendingunni fyrir utan hús í Heiðagerði í Reykjavík. Í kjölfarið ók hún með hana að Réttarholtsvegi  í Reykjavík, þar sem félagi hennar tók við henni. Í framhaldi af því fór félaginn með sendinguna á heimili sitt í Reykjavík, þar sem hann var handtekinn af lögreglu. 

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur næstkomandi föstudag, þann 17. júlí.